Smáríkið hefur áfrýjað nýföllnum dómi Héraðsdóms Reykjaness þar sem forsvarsmaður fyrirtækisins var sektaður um 100 þúsund krónur fyrir brot á áfengislögum.
Í yfirlýsingu Smáríkisins, sem forsvarsmaður þess, Vilhjálmur F. Ólafsson, skrifar undir, segir að Smáríkið telji dóminn efnislega rangan og mikilvægt sé að taka málið fyrir á æðri dómstigum.
„Dómur héraðsdóms í gær er ekki til þess fallinn að skýra viðvarandi óvissu sem ríkir í áfengislögum. Smáríkið telur að starfsemi félagsins sé í fullu samræmi viðgildandi lög og í samræmi við þær reglur sem gilda um sölu áfengis innan EES-svæðisins,“ segir í yfirlýsingunni.
Bent er á að þegar séu starfandi fjöldi sambærilegra fyrirtækja og að í tilviki Smáríkisins hafi tugir þúsunda Íslendinga kosið að túlka núverandi löggjöf með sambærilegum hætti. Sama megi segja um aðrar netverslanir.
„Þá liggur fyrir að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur óskað eftir nánari svörum frá íslenska ríkinu umfyrirkomulag áfengissölu hér á landi. Íslenska ríkið hefur nú þegar heimilað sölu á áfengi áframleiðslustað. Einnig hefur áfengissala í fríhöfninni, stærstu vínbúð Íslands, verið gefin frjáls og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp sem er til þess fallið að skýra betur löggjöf um sölu áfengis í gegnum netverslanir.“
Þá áréttar Vilhjálmur í yfirlýsingunni að fleiri tugir þúsunda teljist til viðskiptavina Smáríkisins.
„Einstaklingar og forsvarsmenn fyrirtækja kjósa á hverjum degi með hvers konar hætti þeir velja og versla sínar neysluvörur, þar með talið áfengi, sem er lögleg neysluvara. Fyrir liggur að íslenskir neytendur hafa frelsi, í gegnum EES-samninginn, til að versla áfengi í gegnum netverslanir.“