Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10 prósentum fleiri en í mars á síðasta ári.
Í tilkynningu flugfélagsins kemur fram að í mánuðinum hafi 39 prósent verið á leið til Íslands, 22 prósent frá Íslandi, 32 prósent hafi verið tengifarþegar og sjö prósent farþegar innanlands.
Farþegum á leið til Íslands hafi fjölgað um 16 prósent og farþegum frá Íslandi um 32 prósent.
„Þetta er í takt við áherslur félagsins á þá markaði sem skila hæstum tekjum hverju sinni og sést árangurinn meðal annars í því að tekjur á hvern seldan sætiskílómetra jukust um 11%, en breytt samsetning farþega hafði þar mest áhrif,“ segir í tilkynningunni.
Fram kemur að sætanýting hafi verið 83,5 prósent og jafnað met síðasta árs fyrir marsmánuð.
„Stundvísi var 75,4% en veður hafði umtalsverð áhrif á stundvísi í mánuðinum. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 45% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 7%.“
Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að sjá megi áframhaldandi góðan árangur af áherslum flugfélagsins á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi.

„Þessi stefna skilar sér í minni árstíðasveiflu og gerir okkur kleift að beina framboðinu á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni. Í mánuðinum var 45% aukning í leiguflugsstarfseminni okkar sem styður einnig við minnkun árstíðasveiflunnar. Í mánuðinum hófum við flug til Faro í suðurhluta Portúgals og hafa viðskiptavinir tekið þessum nýja áfangastað mjög vel,“ segir hann.
Þá bendir Bogi á að eldsneytisverð hafi hækkað hratt í mánuðinum í kjölfar átaka í Mið-Austurlöndum. Við því hafi verið brugðist með margvíslegum aðgerðum, svo sem kostnaðaraðhaldi, endurskoðun fargjalda og aðlögun framboðs í öðrum ársfjórðungi.
„Krefjandi veðurskilyrði á Íslandi höfðu umtalsverð áhrif á flugáætlun okkar í seinni hluta mánaðarins. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar fyrir skilninginn og samstarfið í þessum aðstæðum og starfsfólki Icelandair sem lagði sig fram um að lágmarka áhrifin og koma farþegum á öruggan hátt á áfangastað.“