Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 6,1% í febrúarmánuði samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi.
„Alls voru gistinæturnar tæplega 392.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 369.000 á sama tíma árið 2025,“ segir í frétt Hagstofunnar.
Þá segir að fjölgunina hafi nær alfarið mátt rekja til aukinna gistinátta af hálfu Kínverja og þá einkum á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um alls rúmlega 16.000 eða 17,9% á milli ára.
Fram kemur að í öðrum landshlutum hafi einnig verið aukning á fjölda gistinátta að undanskildum Suðurnesjum þar sem gistinóttum á hótelum fækkaði um 7,5%.
„Á Vesturlandi og Vestfjörðum var 13,3% aukning og 10,6% á Norðurlandi. Þá var 21,3% aukning á Austurlandi en á höfuðborgarsvæðinu jókst fjöldinn aðeins lítillega eða um 1,9% (tæplega 4.000 gistinætur). Alls fjölgaði gistinóttum um tæplega 23.000 á milli ára.“
Þá segir að gistinætur erlendra ferðamanna hafi verið um 352 þúsund, eða 90% af gistinóttum hótela, sem sé 6,7% aukning frá fyrra ári.
„Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 39.000 sem var 0,7% meira en í febrúar árið 2025.“
Bretar stóðu undir flestum gistinóttum útlendinga eða tæpum 86 þúsund um og fækkaði þeim um 3,2% á milli ára.
„Þá fækkaði einnig gistinóttum Bandaríkjamanna (63 þúsund) um 13,2% en eins og áður sagði fjölgaði gistinóttum Kínverja mikið eða úr 30 þúsund í 52 þúsund (73,7%).“
Frekari greiningu er að finna í umfjöllun Hagstofunnar.