Mikil ánægja mælist með þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu í nýjustu könnun Sjúkratrygginga Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu Heilsugæslunnar á höfðuborgarsvæðinu.
„Ánægja með þjónustu og viðmót starfsfólks er sérstaklega mikið og lítill munur á milli stöðva sem reknar eru af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og stöðva sem reknar eru af einkaaðilum,“ segir þar.
Könnunin var gerð frá september og út desember 2025. Allir sem nýttu sér þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu fengu SMS með hlekk í könnunina, en alls bárust um 19 þúsund svör.
„Nítján heilsugæslustöðvar eru starfræktar á höfuðborgarsvæðinu og var spurt um þær allar í könnuninni. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins rekur fimmtán heilsugæslustöðvar en fjórar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru reknar af einkaaðilum.“
Fram kemur að allar séu stöðvarnar fjármagnaðar á sama hátt, í gegnum fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar og alls staðar greiði fólk sama verð fyrir þjónustuna.
Meðaltal einkunna heilsugæslustöðva Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er sögð á bilinu 4,05 til 4,29, en fimm er hæsta mögulega einkunn. Meðaleinkunnin var 4,17.
„Það er svipað og meðaleinkunn annarra heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu, sem mældist 4,16 í könnuninni.“
Þannig hafi bara verið óverulegur munur á stöðvum Heilsugæslunnar og þeim sem reknar eru af einkaaðilum.
Betur gengur að fá tíma
Í könnuninni var spurt hvernig hafi gengið að fá tíma hjá heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins.
„Talsverður munur var á svörum eftir því um hvaða stöð var rætt. Meðaleinkunn stöðva HH í könnuninni var 3,07 en meðaleinkunn einkarekinna stöðva var 2,76.“
Haft er eftir Sigríði Dóru Magnúsdóttur, forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins að bið eftir þjónustu sé áskorun fyrir allar heilsugæslustöðvar.
„Við hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins höfum unnið markvisst að því að stytta biðina. Þó við viljum auðvitað alltaf gera betur og tryggja að fólk fái þjónustu sem fyrst er þetta sannarlega jákvætt merki,“ segir hún.
Sigríður Dóra segir að nú séu öll bráð erindi forflokkuð í Upplýsingamiðstöð HH í gegnum símann 1700 og netspjall Heilsuveru.
Þar hafi náðst góður árangur. Fólk sem þarf að fá tíma komi samdægurs eða daginn eftir. Aðrir fái góð ráð frá reynslumiklum hjúkrunarfræðingum sem vinni samkvæmt vel útfærðum vinnuferlum.
„Reynslan hefur sýnt að það er í mörgum tilvikum nóg að fá ráð í gegnum síma eða netspjall. Með þessari aðferðafræði hefur okkur því tekist að fækka óþörfum komum á heilsugæslustöðvar. Það er gott bæði fyrir skjólstæðingana, sem geta látið sér batna í sófanum heima, og fyrir starfsfólk stöðvanna, sem hefur nú betri tíma til að sinna mikilvægum erindum,“ segir Sigríður Dóra.
Viðmót til fyrirmyndar
Lítill munur er sagður á milli heilsugæslustöðva þegar spurt var um viðmót starfsfólks heilsugæslustöðva.
Á öllum stöðvum mældist mikil ánægja með viðmótið.
„Meðaltal stöðva HH var 4,67 af fimm mögulegum en 4,71 hjá einkareknu heilsugæslustöðvunum,“ að því er fram kemur í tilkynningunni.
Þá mældist almenn ánægja með þjónustuna og stöðvar HH fengu einkunnina 4,44 af fimm mögulegum og aðrar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu 4,54.
„Þegar spurt var um áreiðanleika þeirra upplýsinga sem fólk fékk var einkunnin einnig há, 4,49 hjá stöðvum HH og 4,56 á einkareknu heilsugæslustöðvunum.“
Breytt aðferðafræði
Fram kemur að Sjúkratryggingar hafi áður gert kannanir á þjónustu heilsugæslustöðva, fyrst 2019 en svo aftur 2022, 2023 og svo nýjustu könnunina árið 2025.
„Samanburður milli þessara kannana er varasamur að mati Sjúkratrygginga þar sem ný aðferðafræði var tekin upp í nýjustu könnuninni.“
Áður hafi fólk fengið boð um að taka þátt í könnun með tölvupósti eða sendingu í gegnum Ísland.is, oft talsvert löngu eftir komu á heilsugæslu. Í nýjustu könnuninni hafi fólk fengið SMS með boði um að taka þátt í könnun strax eftir komuna.