Fjórðungur landsmanna hyggst ferðast meira innanlands í ár en á síðasta ári, að því er fram kemur í nýrri ferðavenjukönnun Ferðamálastofu.
Um leið kemur fram að tæp sextíu prósent telji að þeir komi til með að ferðast álíka mikið og í fyrra og tæpur fimmtungur telur sig munu ferðast minna en í fyrra.
„Þá segjast 27% ætla að ferðast meira til útlanda en í fyrra, tæplega helmingur svipað (49%) og áður en um fjórðungur minna (25%),“ segir í umfjöllun Ferðamálastofu.
Þá kemur fram að í könnun síðasta árs hafi heldur fleiri, eða 29 prósent, sagst ætla að ferðast meira innanlands það árið. Hlutfallið nú sé hins vegar svipað og 2024, þegar það var 25 prósent.
„Áform um auknar utanlandsferðir hafa hins vegar lítið breyst milli ára, en hlutfallið var lægra árið 2024 (21%). Jafnframt hefur dregið lítillega úr þeim sem hyggjast ferðast minna til útlanda milli ára.“
Ferðamálastofa segir könnunina sýna að árið 2025 hafi verið líflegt ferðaár meðal landsmanna, þó lítilsháttar samdráttur hafi orðið í utanlands- og dagsferðum.
Áform landans fyrir þetta ár bendi til áframhaldandi stöðugleika og fjölbreyttra ferðavenja.

„Sérstaklega vekur athygli að töluverður hluti landsmanna hyggst ferðast til að fylgjast með almyrkva í ágúst.“
Fram kemur að um 23 prósent hafi sagst ætla að fylgjast með almyrkvanum heiman frá sér og um 19 prósent segist líklega ferðast til að sjá hann.
„Um 20% sögðust hafa áhuga á að fylgjast með honum en vissu ekki hvar best væri að sjá hann. Nærri tveir af hverjum fimm ætluðu sér ekki að fylgjast með almyrkvanum.“
Gallup vann könnunina fyrir Ferðamálastofu dagana 14. janúar til 17. febrúar síðastliðinn. Úrtakið samanstóð af 2.515 einstaklingum, 18 ára og eldri, en svarhlutfall var 44,6 prósent og niðurstöður vigtaðar eftir kyni, aldri og búsetu.
Fram kemur að könnunin hafi verið framkvæmd árlega í sautján ár.