Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands áréttar í yfirlýsingu sinni að hér á landi standi fjármálakerfið traustum fótum og sé vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum.
Í yfirlýsingu nefndarinnar, sem birt hefur verið á vef Seðlabankans, segir að fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt.
„Þeir hafa síðustu misserin endurfjármagnað erlendar markaðsskuldir á hagstæðum kjörum og til lengri tíma en áður.“
Um leið er bent á að stríðsátök við Persaflóa hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana á olíu og öðrum hrávörum.
„Óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum hefur aukist enn frekar, verðbólguhorfur versnað og víða eru væntingar um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif. Afleiðingar þessa gætu með tímanum reynt á fjármálastöðugleika.“
Fjármálastöðugleikanefnd segir þjóðarbúið að mörgu leyti standa vel til þess að mæta þessum áskorunum, ekki síst vegna þétts taumhalds eiginfjárkrafna á viðskiptabanka og lánþegaskilyrða við íbúðakaup.
„Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru lág og hafa farið lækkandi, vanskil eru lítil og aðrir greiðsluerfiðleikar virðast óverulegir.“

árs 2025, að því er fram kemur í Fjármálastöðugleika, riti Seðlabanka Íslands.
Þá sé skuldastaða ríkissjóðs hófleg, ytri staða þjóðarbúsins sterk og gjaldeyrisforði Seðlabankans rúmur.
„Þá hefur verið ágætt jafnvægi í viðskiptum við útlönd sem endurspeglast í stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Mikilvægt er að viðhalda viðnámsþrótti þjóðarbúsins gagnvart óvissu í alþjóðamálum.“
Nefndin bendir á að húsnæðisverð sé enn hátt á flesta mælikvarða en hafi lækkað að raunvirði. Íbúðum á sölu hafi fjölgað og lengri tíma taki að selja eignir en áður, ekki síst nýbyggingar.
„Skuldir byggingageirans við bankakerfið hafa vaxið síðustu misseri en vanskil eru enn lítil. Hátt vaxtastig og langur sölutími gera það að verkum að lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir aukinni áhættu í geiranum.“
Fjármálastöðugleikanefnd segist leggja áherslu á að auka þurfi viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða í ljósi vaxandi spennu á alþjóðavettvangi og mögulegrar fjölþáttaógnar.
Mikilvægt sé að auka fjölbreytni í greiðsluleiðum hér á landi og að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst.
„Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.“
Hér má fylgjast með vefútsendingu Seðlabankans vegna yfirlýsingar fjármálastöðugleikanefndar kl. 9:30 í dag:
Fram kemur á vef Seðlabankans að Fjármálastöðugleikanefnd taki ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands varðandi fjármálastöðugleika, í samræmi við lög nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Ákvarðanir nefndarinna byggist á „vönduðu mati á ástandi og horfum í fjármálakerfinu“.
„Dæmi um stjórntæki varðandi fjármálastöðugleika eru reglur um eiginfjárauka, gjaldeyrisjöfnuð, laust fé og stöðuga fjármögnun fjármálafyrirtækja og reglur sem setja áhættutöku lántakenda mörk, svo sem takmarkanir á veðsetningar- og greiðslubyrðarhlutföllum fasteignalána,“ segir þar.
Samhliða yfirlýsingu nefndarinnar í dag kemur líka út reglubundið rit Seðlabankans, Fjármálastöðugleiki.