Veitufyrirtæki fái forgang við leyfisveitingar framkvæmda

Til að tryggja hraða og skilvirkni í uppbyggingu ómissandi innviða telja Veitur að endurskoða þurfi leyfisferla fyrir framkvæmdir veitufyrirtækja.

Burðarvirki hásspennulína. Hellisheiði. Raforkumannvirki.
Raforkumannvirki á Hellisheiði. Mynd/ÓKÁ

Veitur telja að ganga þurfi lengra en gert er í tillögum ráðherra að breyttu verklagi til að flýta framkvæmdum við raforkuinnviði þegar eignarnám fer fram. Fyrirtækið fagnar engu að síður áformum stjórnvalda um að einfalda regluverk og flýta uppbyggingu raforkuinnviða.

Í umsögn við áform umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem eru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda, benda Veitur á að sömu lögmál og eiga við um raforkuinnviði eigi við um önnur veitutengd mannvirki, svo sem vegna hita- og vatnsveitu.

„Veitur taka undir að gildandi ákvæði, einkum um að framkvæmdir megi ekki hefjast fyrr en samkomulag um bætur hefur náðst eða eignarnám farið fram að fullu, hafi reynst þungt í vöfum og valdi ófyrirsjáanleika,“ segir í umsögninni.

Um leið segir að engin rök standi til þess að breytingin nái aðeins til flutnings- og dreifikerfis raforku.

„Sömu áskorandir eru fyrir hendi þegar kemur að öðrum ómissandi innviðum, s.s. flutningi og dreifingu á heitu vatni, neysluvatni og fráveitu. Þessir innviðir eru nátengdir raforkukerfinu og mynda í raun heildstæða grunnþjónustu sem samfélagið reiðir sig á daglega.“

Um leið bendir fyrirtækið á að samningar við landeigendur séu bara einn þáttur í þeim áskorunum sem rekstraraðilar ómissandi innviða standi frammi fyrir.

„Ekki síður vega þungt ófyrirsjáanlegir og tímafrekir leyfisferlar og skortur á samræmdri málsmeðferð sem geta tafið nauðsynlegar framkvæmdir.“

Til að tryggja hraða og skilvirkni í uppbyggingu ómissandi innviða telja Veitur að endurskoða þurfi leyfisferla fyrir framkvæmdir veitufyrirtækja.

Núverandi fyrirkomulag, þar sem slík verkefni fari í sama ferli og almennar framkvæmdir, valdi oft verulegum töfum.

„Veitufyrirtæki þurfa því að njóta hraðari og skilvirkari málsmeðferðar þegar um er að ræða þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir,“ segir í umsögn Veitna.

Nauðsynlegt sé að móta sérstaka málsmeðferð eða forgangsflokk fyrir slík verkefni, þar sem sveitarfélög og önnur leyfisveitandi stjórnvöld afgreiði málin innan skýrra og styttri tímamarka.

„Slíkt fyrirkomulag myndi ekki fela í sér minni kröfur um gæði eða umhverfisvernd, heldur tryggja að mál sem varða öryggi og grunnþjónustu samfélagsins sæti forgangi og fái markvissa og samræmda afgreiðslu.“

Í umsögnum sem komnar eru frá sveitarfélögunum Skagafirði, Borgarbyggð og Húnaþingi vestra kemur fram skilningur á markmiðum fyrirætlananna og mikilvægi þess að tryggja uppbyggingu nauðsynlegra innviða um leið, en um leið varað við því að gengið sé á stjórnarskrárvarinn eignarétt landeigenda.

„Tryggja þarf að hvati orkufyrirtækja til samráðs og samninga haldist og að eignarréttarákvæði stjórnarskrár verði ekki ógnað,“ segir í umsögn byggðaráðs Skagafjarðar.

Þá segir í umsögn Húnaþings vestra að ótækt sé að landeigendur einir verði látnir gjalda fyrir þá uppbyggingu sem metin sé nauðsynleg með „óviðunandi bótum“ fyrir land sem undir þá innviði væri tekið.

Frestur til að skila inn umsögn við áformin rennur út 26. þessa mánaðar.