ESA bendir á framfarir Íslands varðandi velferð dýra við slátrun

ESA segir að framfarir hafi átt sér stað varðandi þrjú af fimm tilmælum um umbætur sem þörf væri á vegna opinbers eftirlits með vernd dýra við slátrun.

Kind, húsdýr.
Kind. Mynd/ÓKÁ

Átt sér stað framfarir í kjölfar athugasemda sem ESA, eftirlitsstofnun EFTA, gerði við opinbert eftirlit með vernd dýra við slátrun. Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgniskýrslu stofnunarinnar þar sem metin var innleiðing á aðgerðum til verndar dýrum við slátrun.

„Úttektin, sem fram fór á Íslandi dagana 6. til 13. nóvember 2025, var framkvæmd til að meta innleiðingu og skilvirkni þeirra aðgerða sem Ísland tók í kjölfar úttektar ESA í október 2021 á opinberu eftirliti á Íslandi með vernd dýra við slátrun,“ segir í tilkynningu ESA.

Fram kemur að á þeim tíma hafi verið gefin út sjö tilmæli. Úttektinni nú leggur ESA mat á þær ráðstafanir sem gerðar höfðu verið til að bregðast við þeim fimm tilmælum sem enn voru útistandandi eftir úttektina 2021.

„Niðurstaða ESA var sú að framfarir hefðu orðið varðandi þrjú af þeim fimm tilmælum sem metin voru. Þau varða framkvæmd opinbers eftirlits, þvingunaraðgerðir og skyldur rekstraraðila.“

Frekari aðgerða er sagt þörf varðandi tvö tilmæli.

„Að því er varðar það fyrra, sem snýr að áhættumiðuðu opinberu eftirliti, er Ísland að innleiða úrbætur. Þetta er til þess að eftirlit fari fram þar sem þess er mest þörf.“ 

Seinna atriðið er sagt varða ágalla í þjálfun starfsfólks Matvælastofnunar í sláturhúsum sem valdi því að starfsfólk geti ekki greint nægilega vel vandamál sem tengist velferð dýra. 

„Svipuð tilmæli voru einnig gefin út í kjölfar úttektar árið 2019 og gaf Ísland þá tryggingar fyrir því að brugðist hefði verið við þeim. ESA komst hins vegar að því í þessari úttekt að svo hefði ekki verið og hefur því hvatt Ísland til að grípa þegar í stað til úrbóta aðgerða.“

Fram kemur að íslensk stjórnvöld hafi lagt fram áætlun um úrbætur til að bregðast við tilmælum ESA.