Kæra ástralskrar konu, Nöru Walker, á hendur íslenska ríkinu til Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið vísað frá dómi sem ótækri til meðferðar því engar vísbendingar séu um brotalamir í meðferð íslensks réttarkerfis á henni.
Nara Walker hlaut fangelsisdóm á Íslandi 2018 fyrir að bíta framan af tungubroddi fyrrum eiginmanns síns í því sem hún sagði nauðvörn vegna árásar hans á hana. Ekki hafi verið horft til þess í rannsókn lögreglu og hún á endanum hlotið dóm sem árásaraðili.
Nara afplánaði dóm sinn 2019, en mál hennar vakti töluverða athygli, bæði innanlands og utan.
Í kæru sinni taldi Nara Walker að íslenska ríkið hefði brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu með því að ekki hafi farið fram heildstæð rannsókn á máli hennar.
Taka hefði átt til greina sögu um meint heimilisofbeldi fyrrum eiginmanns hennar á hendur henni. Þá vildi hún meina að hún hefði orðið fyrir mismunun í réttarkerfinu, bæði á grundvelli kynferðis og af því hún væri ástralskur ríkisborgari.
Ríkið hefði þannig brotið gegn 3., 8. og 14. grein Mannréttindasáttmálans með því að hún hafi ekki notið verndar gegn ofbeldi, mál hennar ekki rannsakað með fullnægjandi hætti og henni mismunað vegna kyns og þjóðernis.
Í ákvörðun dómstólsins sem birt var í dag segir að ekki hafi fundist fótur fyrir málatilbúnaði hennar um að hún hafi hlotið ósanngjarna meðferð eða verið mismunað í íslensku réttarkerfi.
Dómstóllinn hafi talið fullnægjandi mat lagt á sönnunargögn í máli hennar fyrir íslenskumr dómstólum, en áréttar um leið að það sé ekki hlutverk hans að endurmeta dóma, heldur kanna hvort réttarfarið hefði verið réttlátt.
Dómurinn vísar til þess að lögregla og ákæruvald hafi framkvæmt rannsókn, tekið skýrslur, safnað gögnum og veitt rökstudda niðurstöðu í tengslum við ásakanir Nöru á hendur fyrrum eiginmanni sínum.
Þá hafi hún ekki getað sýnt nein haldbær gögn um að hún hefði sætt mismunun í réttarkerfinu. Fyrri mál gegn Íslandi sýni enga kerfisbundna hlutdrægni í málum tengdum heimilisofbeldi og Nöru hafi verið tryggð bæði túlkaþjónusta og réttargæsla.