Stýrivextir hækkaðir um tuttugu og fimm punkta

Dragist átök við Persaflóa á langinn segir peningastefnunefnd Seðlabankans hættu á að verðhækkanir breiðist út og endurskoðunarákvæði kjarasamninga verði virk síðar á árinu. Það gæti aukið enn frekar á verðbólguþrýsting.

Seðlabanki Íslands og peningar í stað himins.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur kynnt nýjustu ákvörðun sína um stýrivexti. Mynd/samsett

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans í 7,5 prósent, um 0,25 prósentustig.

Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnunefndar að þrír nefndarmenn hafi stutt ákvörðunina en tveir hafi viljað hækka vexti bankans um 0,5 prósentustig.

„Flestir hagvísar bera nú vitni um hægari efnahagsumsvif. Þrátt fyrir það hefur verðbólga aukist á ný og mælist nú 5,2% annan mánuðinn í röð,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Að mati nefndarinnar má að rekja þróunina að nokkru leyti til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá hafi bæst við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs.

„Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka.“

Þá er mikil hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa nú þegar sögð hafa leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði.

„Dragist átökin á langinn er hætta á að verðhækkanir breiðist út, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar eru eins háar og raun ber vitni. Aukin hætta er því á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting.“

Af þessum sökum telur peningastefnunefndin rétt að hækka vexti bankans á ný og tekur fram að hún sé jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.

„Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ áréttar nefndin.

Hér má fylgjast með vefútsendingu frá fundi Seðlabankans kl. 9:30 þar sem farið verður yfir ákvörðun peningastefnunefndar bankans.