Á næstu vikum er fyrirhugað útboð vegna jarðvegsvinnu við nýtt öryggisfangelsi á Stóra Hrauni, í næsta nágrenni við núverandi fangelsi að Litla Hrauni á Eyrarbakka. Í kjölfarið hefjast svo framkvæmdir við byggingu fangelsisins.
Þetta er meðal þess sem fram kom í sérstakri umræðu um fangelsismál sem fram fór á Alþingi í gær að frumkvæði Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar.
Í umræðunni fór Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra yfir stöðu fangelsismála, uppbyggingu nýrra afplánunarrýma og aðgerðir stjórnvalda til að bregðast við þrýstingi á fangelsiskerfið.
Aðstæður batna með nýju fangelsi
Í umfjöllun ráðuneytisins segir að Þorbjörg hafi í ræðu sinni meðal annars gert grein fyrir undirbúningi að byggingu Stóra-Hrauns, en fangelsið er sagt verða með 128 afplánunarrými og komi til með að bæta aðstöðu til að aðskilja fanga eftir þörfum, efla öryggi og skapa betri skilyrði fyrir menntun, endurhæfingu og meðferð.
„Ráðherra fjallaði einnig um aðra uppbyggingu í fangelsismálum, þar á meðal fyrirhugaða stækkun opna fangelsisins að Sogni sem meðal annars mun fjölga afplánunarrýmum fyrir konur,“ segir þar.

Þá lagði Þorbjörg áherslu á að í millitíðinni, áður en hægt væri að taka Stóra Hraun í notkun, þyrfti að grípa til markvissra aðgerða til að létta á fangelsiskerfinu.
„Staðan er sú að fangelsin okkar eru full af erlendum glæpamönnum sem oft hafa lítil sem engin tengsl við landið. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir og afplánun lýkur á það fólk að fara úr landi. Þannig tryggjum við að fangelsisrými nýtist þar sem þeirra er raunverulega þörf,“ sagði hún.
Í þessum efnum vísað hún til frumvarps um brottvísanir erlendra fanga sem afgreitt hefur verið úr ríkisstjórn.
Ríki hafa verið beðin um að taka við erlendum föngum
„Um er að ræða tímabundna aðgerð og markmið frumvarpsins er að tryggja að þegar brottvísun hefur verið ákveðin verði hún framkvæmd án tafar að afplánun lokinni og að viðkomandi fái endurkomubann til Íslands og eftir atvikum alls Schengen-svæðisins,“ segir í umfjöllun ráðuneytisins.
Þá upplýsti dómsmálaráðherra að ráðuneytið hefði hafið endurskoðun á verkferlum vegna flutnings dæmdra manna milli ríkja til afplánunar í heimaríki á grundvelli alþjóðlegra samninga.
„Nú þegar hafi íslensk stjórnvöld sent erlendum ríkjum beiðnir um að taka við föngum, sem ekki hafi verið gert í meira en áratug.“
Um leið ræddi Þorbjörg Sigríður mikilvægi þess að styðja við endurhæfingu fanga sem snúi aftur í samfélagið.
„Það er ekki nóg að líta til nýtingar afplánunarrýma. Það þarf að huga að þjónustu og aðbúnaði þeirra fanga sem sæta afplánun og veita þeim nauðsynlegan stuðning. Markmiðið er að fangar komi út sem betri menn, reiðubúnir til að takast á við verkefni lífsins,“ sagði ráðherra.
Þá kemur fram að hún hafi minnt á mikilvægi starfs fangavarða og nefnt nýlegan samstarfssamning Fangelsismálastofnunar og Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu um grunnnám og endurmenntun fangavarða sem gildi til fimm ára.
Fyrrum dómsmálaráðherra segir þörfina brýna

Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, kvaddi sér einnig hljóðs í umræðunni og fagnaði því að komið væri að næstu skrefum við byggingu Stóra Hrauns, fangelsis sem hún í tíð sinni sem dómsmálaráðherra hafi tekið ákvörðun um að skyldi byggt.
„Ástæðan var einföld. Staðan var og er löngu komin að þolmörkum. Húsnæðið á Litla-Hrauni er úrelt og í vissum tilfellum ónýtt,“ sagði hún.
Guðrún áréttaði að álagið í kerfinu væri of mikið og biðin eftir afplánun allt of löng.
„Það er hvorki gott fyrir samfélagið, starfsfólkið né þá sem þar afplána. Eins og staðan er núna og hefur verið mjög lengi er ekki hægt að tryggja öryggi fanga. Það er ekki hægt að tryggja öryggi starfsfólks og öll aðstaða fyrir aðstandendur er fyrir neðan allar hellur,“ sagði hún.
Auk málshefjanda og dómsmálaráðherra tóku níu þingmenn aðrir þátt í umræðunni, en hægt er bæði að horfa á ræður þeirra og lesa á vef Alþingis.