SAS slítur codeshare samstarfi við Icelandair

Nú sér fyrir endann á codeshare-samstarfi SAS og Icelandair.
Nú sér fyrir endann á codeshare-samstarfi SAS og Icelandair. Mynd/samsett

SAS hefur sagt upp samkomulagi við Icelandair um samkennd flug og gagnkvæm réttindi fyrir flugfarþega sem félögin gerðu 2010, svonefnt codeshare agreement. Vefmiðillinn FF7 hefur þetta eftir danska flugfréttamiðlinum Check In.

Með slíku samstarfi flugfélaga geta farþegar keypt miða hjá einu flugfélagi á áfangastað þó að að baki séu fleiri flugnúmer og flugleggir.

Í umfjöllun FF7 segir að SAS, sem sé stærsta flugfélag Norðurlanda, sjái sér frekar hag í að fjölga eigin ferðum til Íslands en að halda áfram samvinnunni við Icelandair. Flugfélagið ætli sér stærri hluti í Ameríkuflugi og þurfi að ná til sín farþegum sem annars hefðu millilent á Keflavíkurflugvelli.

„Uppsögnin tekur gildi í lok þessa mánaðar og þá verða flugferðir Icelandair til Skandinavíu ekki lengur merktar SAS eins og tíðkast síðustu 16 ár,“ segir í frétt FF7.

Um leið kemur fram að farþegar geti áfram bókað farangur alla leið á áfangastað þótt flogið sé með báðum félögum.