Konur voru rétt tæp 69 prósent brautskráðra úr háskólanámi árið 2024 og karlar 31 prósent. Í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands kemur fram að það ár hafi alls brautskráðst 5.276 nemendur úr háskólanámi, 3.630 konur og 1.646 karlar.
„Háskólanemar á sviði félagsvísinda voru flestir brautskráðra og konur voru í meirihluta á flestum sviðum.“
Af þeim sem brautskráðust hafi um helmingur, eða 51,4 prósent, lokið fyrstu háskólagráðu, þar af 1.775 konur og 937 karlar.

Þá kemur fram að af sviði félagsvísinda hafi 1.690 nemendur brautskráðst, þar af 1.113 konur og 577 karlar. Af þeim hafi 782 lokið fyrstu háskólagráðu.
„Næstflestir brautskráðust af heilbrigðis- og velferðarsviði, alls 1.075 og þar af luku 556 nemendur fyrstu háskólagráðu. Mesti kynjamunur brautskráðra var á þessu sviði en í heildina brautskráðust 952 konur en aðeins 123 karlar.“
Hagstofan segir að konur hafi bara verið í minnihluta brautskráninga af sviði verkfræði, framleiðslu og mannvirkjagerðar.
„Af því sviði brautskráðust 435 nemendur, 271 karlar og 164 konur, þar af 325 með fyrstu háskólagráðu.“
Af sviði raunvísinda, stærðfræði og tölvunarfræði hafi svo brautskráðst 478 nemendur, 238 karlar og 240 konur.
Þá afi 929 verið útskrifaðir af sviði menntunar, 444 af sviði hugvísinda og lista og 188 af sviði þjónustu.
„Fæstir brautskráðra voru af sviði landbúnaðar og dýralækninga, eða 37 nemendur.“