Fornleifastofnun fær 40% úthlutunar Fornminjasjóðs

Fornminjasjóður úthlutar styrkjum til fornleifarannsókna, upplýsingamiðlunar um fornminjar, varðveislu og viðhalds fornminja og til rannsókna á forngripum.

Horft yfir á Lögberg á Þingvöllum.
Horft yfir á Lögberg á Þingvöllum. Mynd/Balázs Gábor á Unsplash

Fornminjasjóður hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2026 að upphæð 93,7 milljónir króna til 29 verkefna.

Fram kemur á vef Minjastofnunar að alls hafi borist 83 umsóknir í sjóðinn og alls sótt um 337.412.125 krónur.

Tæp 40 prósent heildarstyrkupphæðarinnar, 37,4 milljónir króna, renna til Fornleifastofnunar Íslands vegna níu verkefna á hennar vegum, en þar á eftir kemur Byggðasafn Skagfirðinga sem fær 15,6 milljónir í þrjú verkefni. Þriðju hæstu úthlutun hlýtur svo Antikva ehf., 9,2 milljónir, sömuleiðis til þriggja verkefna.

Fram kemur á vef Minjastofnunar að hlutverk Fornminjasjóðs sé að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornminjum.

Þá kemur fram að úthlutað sé styrkjum til eftirfarandi verkefna: 

  • Fornleifarannsókna (fornleifauppgraftar og fornleifaskráningar)
  • Miðlunar upplýsinga um fornminjar
  • Varðveislu og viðhalds fornminja, þ.e. fornleifa og forngripa
  • Rannsókna á forngripum

„Sjóðnum er jafnframt heimilt að veita styrki til viðhalds annarra menningarminja sem hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi, t.d. minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislugildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja,“ segir þar.

Hér má sjá heildarupphæð styrkja:

UmsækjandiStyrkupphæð
Fornleifastofnun Íslands37.400.000 kr.
Byggðasafn Skagfirðinga15.600.000 kr.
Antikva ehf9.200.000 kr.
Eldstál ehf6.000.000 kr.
Borgarsögusafn Reykjavíkur5.000.000 kr.
Háskóli Íslands5.000.000 kr.
Sagnabrunnur ehf3.700.000 kr.
Arthur Knut Farestveit3.100.000 kr.
Hið íslenska fornleifafélag2.500.000 kr.
Margrét Hallgrímsdóttir2.500.000 kr.
Lilja Björk Brinks Pálsdóttir2.400.000 kr.
Ármann Guðmundsson1.800.000 kr.
Maren Clara von Mallinckrodt1.500.000 kr.
Minjafélag Vatnsleysustrandarhrepps1.000.000 kr.
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum600.000 kr.
Alls:97.300.000 kr.

Nánari útlistun á hverju verkefni er að finna á samantektarblaði Fornminjasjóðs.