Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi fari nú minnkandi

Mest mældist atvinnuleysið á Suðurnesjum í febrúar, 8,8 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra, 2,0 prósent.

Mánaðarskýrsla Vinnumálastofnunar.
Mánaðarskýrsla Vinnumálastofnunar. Mynd/Samsett-ÓKÁ

Vinnumálastofnun spáir því að í þessum mánuði dragi úr atvinnuleysi og það verði á bilinu 4,7 til 4,8 prósent. Þetta kemur fram í nýjustu mánaðarskýrslu stofnunarinnar.

Fram kemur að skráð atvinnuleysi í febrúar hafi verið 4,9 prósent og staðið í stað á milli mánaða. Í febrúar 2025 hafi atvinnuleysi hins vegar verið 4,3 prósent.

„Að meðaltali voru 9.772 atvinnulausir í febrúar, 5.849 karlar og 3.923 konur. Meðalfjöldi atvinnulausra fjölgaði um 24 manns milli mánaða,“ segir í skýrslunni.

Mest mældist atvinnuleysið á Suðurnesjum í febrúar, 8,8 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra, 2,0 prósent.

„Alls komu inn 285 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í febrúar. Atvinnulausir voru 10.128 í lok febrúar, 5.993 karlar og 4.135 konur.“

Þá kemur fram að í síðasta mánuði hafi Vinnumálastofnun gefið út 205 atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara, þar af 166 á höfuðborgarsvæðinu. Eins hafi 201 einstaklingur verið á ráðningarstyrk innan fyrirtækja eða stofnana og einn var á nýsköpunarstyrk.