Menningarmiðstöð opni í Smáralind vorið 2027

Bæjarstjóri Kópavogs segir að ný menningarmiðstöð í Smáralind og nýtt bókasafn í efri byggðum þýði líka bætt aðgengi Kópavogsbúa að bókum, sem sé gríðarlega mikilvægt á tímum þar sem dregið hafi úr lestri barna og ungmenna.

Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, Védís Hervör Árnadóttir, Halldór Benjamín Þorbergsson, Ásdís Kristjánsdóttir, Orri Vignir Hlöðversson, Soffía Karlsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir.
F.v.: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, útibússtjóri í Lindasafni, Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri, Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Orri Vignir Hlöðversson formaður bæjarráðs, Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála, Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar. Mynd/Kópavogsbær

Kópavogsbær og Heimar ehf. hafa samið um uppbyggingu nýrrar menningarmiðstöðvar í Smáralind sem áætlað er að opni vorið 2027.

Í tilkynningu bæjarins er verkefnið sagt þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima, en um sé að ræða framsýna hugsun á sviði menningarmála þar sem saman fléttist nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu.

„Verkefnið er jafnframt hluti af stærri þróun menningarinnviða hjá Kópavogsbæ sem samþykkt var í bæjarstjórn í gær þar sem áætlað er að tveir nýir menningarkjarnar rísi. Annars vegar í Kórnum og hins vegar í Smáralind,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, að bærinn sé öflugur menningarbær og státir nú þegar af einu besta bókasafni landsins í Hamraborg.

„Menningarmiðstöðin mun efla starfsemi þess enn frekar og auka um leið aðgengi að menningunni í Kópavogi,“ segir hún.

Menningarmiðstöð í Smáralind og nýtt bókasafn í efri byggðum þýði líka bætt aðgengi íbúa að bókum, sem sé gríðarlega mikilvægt á tímum þar sem dregið hafi úr lestri barna og ungmenna.

Þá hafi uppbygging íbúða og þjónustu í Smárahverfi undanfarin ár stutt við svæðið sem annan af tveimur miðpunktum bæjarins og mikilvægt að menningin eigi þar samastað.

„Á þessu kjörtímabili höfum við lagt ríka áherslu á að efla enn frekar menninguna í Kópavogi og ég er afar stolt af þeim breytingum sem við höfum ráðist í með endurnýjun á aðalsafni og Náttúrusafni Kópavogs. Ég er sannfærð um að íbúar Kópavogs munu taka menningarmiðstöðinni fagnandi, rétt eins og þeim breytingum sem við höfum þegar ráðist í,“ segir Ásdís.

Fram kemur að skrifstofa umbóta og þróunar hafi leitt undirbúning verkefnisins og haft eftir Védísi Hervöru Árnadóttur, umbóta- og þróunarstjóra, að um sé að ræða „eitt mesta framfaraskref í uppbyggingu menningarinnviða í langan tíma“ eða allt frá því að menningarkjarninn við Hamraborg hafi risið þar sem nú standi Salurinn, Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs og Náttúrusafn Kópavogsbæjar.

„Bókasöfn gegna nýju hlutverki í breyttum heimi, eru heimili að heiman, vettvangur viðburða og afdrep í erli samtímans. Menningarmiðstöð í Smáralind er því frábær viðbót við þá þjónustu og menningarframboð í Kópavogsbæ. Við sjáum fjölmörg spennandi tækifæri í nýju rými þar sem við ætlum að sameina nútímabókasafn, menningu, upplifun, starf og leik. Við munum nýta okkar þekkingu en jafnframt horfa til þess er best gerist í nágrannalöndunum í söfnum á borð við Oodi í Helsinki og Deichman í Osló,“ segir Védís Hervör.