Sýnist skorta á markvissa innleiðingu gervigreindar

Alls nota 45% fyrirtækja tækni sem greinir ritmál eða texta, 27% nota tækni sem býr til ritað eða talað mál og 22% nota tækni sem býr til myndir, myndbönd eða hljóð. Áhyggjur af notkun tækninnar eru algengari á meðal smærri fyrirtækja en þeirra stærri.

Gervigreind - AI
Mynd/Steve Johnson á Unsplash

Notkun gervigreindar er talsvert útbreidd á meðal íslenskra fyrirtækja samkvæmt nýjum niðurstöðum Hagstofu Íslands.

Í úttekt Hagstofunnar kemur fram að um helmingur fyrirtækja noti einhvers konar gervigreindartækni eða gervigreindarhugbúnað.

„Mun lægra hlutfall fyrirtækja getur þó tilgreint í hvaða verkefnum tæknin er notuð og enn færri hafa mótað sér formlega stefnu um notkun hennar.“

Niðurstöðurnar sýna að 48 prósent fyrirtækja nota gervigreindarhugbúnað af einhverju tagi og 50 prósent segjast nota tilgreinda gervigreindartækni.

Á sama tíma segist fjórðungur fyrirtækja nota gervigreind í tilgreindum verkefnum og fjórtán prósent segjast hafa mótað sér stefnu um notkun hennar.

„Þetta bendir til þess að almenn notkun gervigreindar sé útbreiddari en markviss innleiðing hennar í afmörkuð verkefni og verklag.“

Hagstofan segir ekki hægt að draga einhlítar ályktanir um ástæður þessa munar af niðurstöðunum.

Aðgengilegar veflausnir mest notaðar

„Gögnin sýna þó að víða virðist notkun tækninnar komin lengra en formleg stefnumótun og skilgreining notkunarsviða.“

Notkun aðgengilegra veflausna er sögð algengust.

„Alls nota 46% fyrirtækja hugbúnað á internetinu svo sem ChatGPT eða sambærilegar þjónustur. Þar af nota 39% greidda áskrift að einhverju marki og 37% ókeypis áskrift. 9% nota einungis greidda áskrift. Hlutfall þeirra fyrirtækja sem nota sérþróaðar eða sérbreyttar lausnir er hins vegar mun lægra.“

Þá eru niðurstöðurnar sagðar sýna að textatengd notkun sé útbreiddust.

„Alls nota 45% fyrirtækja tækni sem greinir ritmál eða texta, 27% nota tækni sem býr til ritað eða talað mál og 22% nota tækni sem býr til myndir, myndbönd eða hljóð.“

Minni fyrirtæki líklegri til að hafa áhyggjur

Þá kemur fram að 31 prósent fyrirtækja tilgreini einhverjar áhyggjur af notkun gervigreindar.

„Algengast er að fyrirtæki nefni skort á viðeigandi sérþekkingu en einnig eru nefnd álitamál sem lúta að aðlögun að núverandi kerfum og búnaði sem og siðferðileg og lagaleg álitaefni. Áhyggjur eru algengari á meðal smærri fyrirtækja en þeirra stærri.“

Niðurstöðurnar eru jafnframt sagðar benda til þess að tegund áhyggja sé háð stöðu fyrirtækja í innleiðingu gervigreindar.

„Í atvinnugreinum og stærðarflokkum þar sem notkun í tilgreindum verkefnum og stefnumótun er útbreiddari séu áhyggjur almennt fátíðari. Þar sem notkun í tilgreindum verkefnum og stefnumótun eru fátíðari eru áhyggjur oftar tengdar skorti á sérþekkingu og aðlögun að núverandi kerfum og búnaði.“

Niðurstöðurnar eru fengnar úr könnun Hagstofunnar á upplýsingatækninotkun fyrirtækja sem framkvæmd var á árinu 2025.

Þetta mun vera í fyrsta sinn sem spurt er um notkun gervigreindar í könnuninni hérlendis, en hún byggði á slembiúrtaki á meðal fyrirtækja.

„Stærð úrtaks var 848 fyrirtæki og svarhlutfall 62%.“