ESA slær á fingur Íslands vegna brotalama í matvælaeftirliti

Nýleg úttekt ESA leiddi í ljós umtalsverða veikleika í eftirlitskerfi Íslands með matvælum sem ekki eru af dýrauppruna. ESA segir að frá 2012 hafi ítrekað verið bent á veikleikana sem varði samhæfingu milli eftirlitsaðila.

Grænmeti í verslun.
Grænmeti í verslun. Mynd/nrd á Unsplash

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur birt skýrslu þar sem lagt er til að Ísland efli eftirlit með framleiðendum matvæla sem ekki eiga uppruna í dýraríkinu. Þar undir eru til dæmis framleiðsla niðurskorinna ávaxta og grænmetis, blaðgrænmetis og baunaspíra.

Í tilkynningu stofnunarinnar segir að skýrslan komi í kjölfar úttektar sem gerð var á Íslandi síðasta haust, 8. til 17. september.

„Markmið úttektarinnar var að sannreyna að farið væri eftir EES-löggjöf um opinbert eftirlit með framleiðslu matvæla sem ekki eru af dýrauppruna og að meta skilvirkni þess opinbera eftirlitskerfis sem er til staðar,“ segir í tilkynningu ESA.

ESA segir úttektina hafa leitt í ljós að opinbera eftirlitskerfið með matvælum sem ekki eru af dýrauppruna sé til staðar og að samþykktir framleiðendur séu undir reglulegu eftirliti heilbrigðiseftirlitanna á hverju svæði um sig.

„Úttektin leiddi hins vegar einnig í ljós umtalsverða veikleika í eftirlitskerfinu hvað varðar samhæfingu milli eftirlitsaðila við framkvæmd eftirlits, sem eru mjög áþekkir þeim veikleikum sem ESA hefur ítrekað bent á frá 2012 og voru grunnur að formlegu áminningarbréfi stofnunarinnar um ágalla í opinberu eftirliti á sviði matvæla frá 2024.“

Skýrslan inniheldur fern tilmæli sem íslensk yfirvöld þurfa að bregðast við til að bæta núverandi eftirlitskerfi:

  • Tryggja þarf skilvirka samhæfingu og samstarf á milli lögbærra yfirvalda á Íslandi.
  • Aðgerðir sem gripið er til að leiðrétta frávik í eftirlitsheimsóknum þurfa að tryggja að bætt sé úr frávikum á skilvirkan hátt.
  • Tryggja þarf að sýnataka og greiningar vegna örverumælinga séu framkvæmdar í samræmi við gildandi löggjöf.
  • Opinbert eftirlit þarf að tryggja að framleiðendur baunaspíra uppfylli viðeigandi lögbundnar kröfur um sýnatöku og örverumælingar.

Fram kemur að Ísland hafi lagt fram áætlun um úrbætur til að bregðast við tilmælum ESA og hún fylgi skýrslunni, en hana má nálgast HÉR.