Síðustu vikur hefur dregið úr rennsli í Vígðulaug á Laugarvatni. Laugin er friðlýstur minjastaður og leikur stórt hlutverk í trúarsögu Íslendinga.
Greint er frá því í frétt á vef Sunnlenska að komið hafi tímabil þar sem ekkert vatn hafi runnið um laugina. Þekkt sé að laugin hafi þornað upp áður í langvarndi þurrkatíð, eins og hafi verið nánast síðan um síðustu jól.
„Einnig hefur komið í ljós að það er samspil á milli hversins við gufubað Fontana og Vígðulaugar og framkvæmdir Fontana við endurnýjun steyptrar þróar við gufubaðshverinn hafa haft áhrif á vatnsstöðu. Dæla hefur þurft vatni frá hvernum og dregur þá úr rennsli í Vígðulaug,“ segir í fréttinni.
Fram kemur að þegar dælingu sé hætt seytli vatn á ný um Vígðulaug, en þegar ný þró við gufubaðshverinn verði tilbúin komist sama jafnvægi á vatnsstöðuna og verið hafi áður.
„Þar sem Vígðalaug er friðlýst er hún í umsjá Minjastofnunar og hefur Bláskógabyggð upplýst stofnunina um málið.“
Hveralækurinn sem rennur í Vígðulaug heldur alla jafna hitastigi í henni á bilinu 35 til 40 gráður. Hún var áður nefnd Reykjalaug og talið að Laugavatn og nærliggjandi byggð hafi verið eftir henni nefnd.
Í umfjöllun um laugina á vef Minjastofnunar kemur fram að ekki aðeins hafi Norðlendingar og Sunnlendingar látið þar skírast til kristinnar trúar á leið frá Alþingi um árið 1000, heldur hafi hún einnig leikið hlutverk í siðaskiptunum um 1550.
„Jón Arason Hólabiskup var hálshöggvinn ásamt sonum sínum tveimur í Skálholti eins og þekkt er og um vorið 1551 sóttu Norðlendingar líkin í Skálholt til að færa þau heim að Hólum. Á leiðinni norður var áð við Vígðulaug, líkbörurnar voru lagðar á steina og líkin þvegin í lauginni. Þessir steinar eru því nefndir Líkasteinar og eru þeir enn við laugina í dag,“ segir þar.
Þá er sagt um Vígðulaug, líkt og um margar heitar laugar á landinu, að vatnið í henni hafi lækningamátt.
„Ingunn Eyjólfsdóttur, sem fæddist árið 1873 á Laugarvatni, greindi frá því að í hennar barnæsku hafi oft verið sent eftir vatni í laugina þegar einhver veiktist á bæjum í nágrenninu og því greinilegt að fólk hafði mikla trú á lækningamætti vatnsins í lauginni.“
Vígðalaug var friðlýst árið 1969. Fjallað er um hana í skýrslu Fornleifastofnunar um friðlýstar minjar á Suðurlandi frá árinu 2015.