Utanríkisráðherra áréttaði mikilvægi virðingar fyrir alþjóðalögum og mannréttindum í ávarpi sínu til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í dag. Nú stendur yfir árleg ráðherravika ráðsins í Genf.
Fram kemur í færslu utanríkisráðuneytisins að á fundinum hafi hún komið á framfæri áhyggjum sínum af stöðu mannréttindamála á heimsvísu.
„Ráðherra sagði síðasta ár hafa verið afar krefjandi fyrir alþjóðakerfið í skugga átaka víða um heim og þverrandi virðingu fyrir alþjóðalögum,“ segir þar.
Í ávarpinu benti Þorgerður Katrín á að bara á undanförnum þremur árum hafi fimm lönd samþykkt lög sem geri samkynhneigð refsiverða.
„Grundvallarréttindi eins og aðgangur að öruggu þungunarrofi og tjáningarfrelsi eru undir vaxandi þrýstingi. Grafið er undan grundvallarmannréttindum og þau jafnvel vísvitandi hundsuð, þar á meðal sjálfsákvörðunarréttur og jöfn réttindi allra,“ sagði hún jafnframt.
Þá ítrekaði utanríkisráðherra ásetning íslenskra stjórnvalda um að halda áfram að berjast fyrir grundvallarréttindum allra og styðja við aðgerðir sem stuðla að því að þau sem bera ábyrgð á mannréttindabrotum verði dregin til ábyrgðar.
Þorgerður Katrín hvatti þjóðir heims til að taka höndum saman og standa vörð um mannréttindi og alþjóðakerfið, sem sé hornsteinn friðar í heiminum.
„Þessi alvarlega þróun á sér ekki stað í tómarúmi. Þetta er hluti af víðtækari aðför að lýðræði, mannlegri reisn og alþjóðakerfinu byggðu á lögum og reglum. Fyrir lítið ríki eins og Ísland, sem byggir öryggi sitt og velferð á þessum gildum, er þetta ekki bara áhyggjuefni, þetta er tilvistarspursmál,“ sagði hún.
Fram kemur að ráðherravikan marki upphaf 61. fundarlotu mannréttindaráðsins. Ísland tók sæti í ráðinu í upphafi árs 2025 og situr til loka árs 2027.
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna ávörpuðu ráðið við upphaf lotunnar ásamt forseta allsherjarþingsins.

Ráðuneytið segir Þorgerði Katrínu jafnframt hafa átt tvíhliða fund með Volker Türk mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna þar sem hún hafi ítrekaði skýran stuðning Íslands og áherslur í mannréttindamálum.
Í færslu utanríkisráðuneytisins segir að skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna vinni að framfylgd ályktana mannréttindaráðsins og að vernd og eflingu mannréttinda á heimsvísu.
„Mannréttindi eru lögð til grundvallar stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu og er stuðningur við skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna liður í að fylgja stefnunni eftir.“