Hátt í sjö tímar daglega fóru í notkun margvíslegra miðla

Í nýrri könnun Hagstofunnar, þeirri fyrstu sinnar tegundar, var litið til notkun hvers konar miðla, allt frá samfélagmiðlum og hefðbundnum fjölmiðlum til tölvuleikja, hlaðvarpa og tónlistar.

Samfélagsmiðar á símaskjá.
Samfélagsmiðar á símaskjá. Mynd/dole777 á Unsplash

Fólk á aldrinum 16 ára og eldra varði að jafnaði hátt í sjö klukkustundum daglega í notkun hvers kyns fjölmiðla árið 2023.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýrri miðla- og menningarvog 2023 hjá Hagstofu Íslands sem varpar ljósi á fjölmiðlanotkun og menningarþátttöku landsmanna.

Þá var á meðal niðurstaðna að fast að annar hver hafði iðkað tónlist sem áhugamál síðastliðna tólf mánuði.

„Þetta er í fyrsta sinn sem Hagstofa Íslands framkvæmir slíka athugun en gert er ráð fyrir að hún verði endurtekin á þessu ári,“ segir á vef Hagstofunnar.

Undir í könnuninni var notkun hvers konar miðla, allt frá samfélagmiðlum og hefðbundnum fjölmiðlum til tölvuleikja, hlaðvarpa og tónlistar.

Á toppi daglegrar notkunar tróna samfélagsmiðlar, sem 68 prósent sögðust nota. En á toppi vikulegrar notkunar eru sjónvarps- og myndveitur með 89 prósent.

Þá kemur fram á vef Hagstofunnar að gagnaöflun hafi farið fram frá nóvember 2022 fram í maí 2023. Ekki er vikið að því orðum af hverju ekki var hægt að birta niðurstöður fyrr en nú, nærri þremur árum síðar.