Reykjavíkurhöfn hlaut nýlega sérstök verðlaun ferðaþjónustu skemmiferðaskipa, Cruceroadicto Awards, á FITUR – International Tourism Fair ráðstefnunni í Madrid.
„Sérstaða Cruceroadicto verðlaunanna eru að það eru farþegarnir sjálfir sem velja verðlaunahafana – ekki dómnefnd,“ segir á vef Faxaflóahafna.
Fram kemur að yfir fimmþúsund farþegar hafi tekið þátt í vali verðlaunanna í ár.
„Í einkunnagjöf þeirra skaraði Reykjavíkurhöfn framúr hvað varðar aðgengi, öryggi og fegurð áfangastaðarins í flokki hafna í Norður-Atlantshafsins (Best Port – Atlantic Europe).“
Þá segir að þetta hafi verið fjórða árið í röð sem verðlaunin eru veitt þar sem sem skip, fyrirtæki og hafnir innan skemmtiferðaskipa-geirans hljóta verðlaun og viðurkenningu.
Cruceroadicto verðlaun voru veitt í 19 flokkum, en verðlaunafhendingin fór fram á FITUR – International Tourism Fair, stærstu ferðaráðstefnu Spánar.
Kristín Arna Bragadóttir hjá Íslandsstofu veitti verðlaunum viðtöku fyrir hönd Faxaflóahafna.
„Af höfnum Norðurlandanna hlaut Kaupmannahöfn einnig verðlaun. Aðrar borgir er hlutu Cruceroadicto bikar að þessu sinni eru Barcelona, Buenos Aires, Dubai, Miami, San Juan í Puerto Rico, Singapore, Sydney og Valletta.“
Á vef verðlaunanna er svo að finna lista yfir alla verðlaunahafa.