Tveir starfsmenn heilsugæslu með berklasmit

Smit þýðir að bakterían greindist í blóði starfsmannanna. Þeir eru ekki með nein einkenni og eru ekki smitandi.

Heilsugæslan Miðbæ við Vesturgötu í miðbæ Reykjavíkur.
Heilsugæslan Miðbæ við Vesturgötu í miðbæ Reykjavíkur. Mynd/Heilsugæslan

Við skimun á starfsfólki greindust tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með berklasmit.

Í tilkynningu Heilsugæslunnar kemur fram að þó svo að bakterían hafi greinst í starfsfólkinu hafi það ekki verið smitandi og sýni engin einkenni um berkla.

„Skjólstæðingar stöðvarinnar hafa því ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að í öryggisskyni hafi verið ákveðið að skima framlínustarfsfólk Heilsugæslunnar í kjölfar þess að berklasmit greindist hjá starfsfólki bráðamóttöku Landspítalans.

„Skimanir fóru fyrst fram á þeim starfsstöðvum þar sem talið var líklegt að starfsfólk hafi verið í samskiptum við einstaklinga sem gætu verið smitaðir af berklum.“

Eftir skimunina kom í ljós að tveir starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ voru með berklasmit.

„Smit þýðir að bakterían greindist í blóði starfsmannanna. Þeir eru ekki með nein einkenni og eru ekki smitandi.“

Í kjölfarið fara starfsmennirnir í frekari rannsóknir og svo viðtal og mögulega meðferð hjá smitsjúkdómalækni.

Haft er eftir Sigríði Dóru Magnúsdóttur, forstjóra Heilsugæslunnar, að vitanlega sé þarna um að ræða áfall fyrir þessa starfsmenn, þeirra fjölskyldur og samstarfsfólk. Hugur Heilsugæslunnar sé fyrst og fremst hjá þeim.

„Við höfum rætt við bæði starfsmennina tvo og þeirra samstarfsfólk og upplýst að við stjórnendur stofnunarinnar munum standa þétt að baki þeim. Öryggi okkar starfsfólks er alltaf í forgrunni í allri okkar starfsemi,“ segir hún.

Þá kemur fram að berklar smitist við langvarandi eða náin samskipti við einstakling sem sé með virka og smitandi berkla í lungum. Þeir smitist ekki við snertingu, af yfirborði hluta eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smitaður einstaklingur hafi notað.

Heilsugæslan segir að vinna við skimun framlínustarfsfólks haldi áfram af fullum þunga.

„Þar verður áfram forgangsraðað þannig að starfsfólk sem metið er í meiri áhættu verði skimað sem fyrst en markmiðið er að bjóða öllu framlínustarfsfólki sem vill upp á berklapróf.“

Frekari upplýsingar um berkla og berklasmit má finna á vef embættis landlæknis.