Von er á hátt í 300 gestum á ráðstefnuna Cruise Europe 2026 sem fer fram í Hörpu í Reykjavík 26. til 29. maí næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðstefnan fer fram á Íslandi, en hún hefur verið haldin árlega frá árinu 1991.
Faxaflóahafnir segja gesti ráðstefnunnar meðal annars koma til með að kynna sér nýja farþegamiðstöð Faxaflóahafna, hafnararaðstöðu hér á landi og Ísland sem áfangastað.
„Meðal þeirra borga sem hýst hafa ráðstefnuna síðustu 35 ár eru Amsterdam, Bilbao, Bergen, Bordeux, Bremen, Brussel, Dublin, Edinborg, Lissabon, Stokkhólmur og Kaupmannahöfn sem héldu ráðstefnuna í fyrra.“
Í færslu Faxaflóahafna um viðburðinn fagnar Gunnar Tryggvason hafnarstjóri því að Cruise Europe hafi valið Reykjavík sem staðsetningu næsta ársfundar.
„Komum skemmtiferðaskipa til Íslands hefur fjölgað verulega á síðustu árum og Reykjavík orðin ein af stóru höfnunum í Evrópu í þessum geira. Nýja farþegamiðstöðin verður komin í gagnið þegar ráðstefnan fer fram og því hentar þessi tímasetning einstaklega vel,“ segir hann.
Gunnar segir að ætla megi að stjórnendur skipafélaganna heimsæki Reykjavík í tengslum við ráðstefnuna og í því kunni að felast markaðstækifæri sem nýst gætu fleiri höfnum á Íslandi
Dagskrá Cruise Europe 2026 er mestu sögð fara fram í og við Reykjavíkurhöfn. Harpa hýsi ráðstefnhluta dagskrárinnar en viðburðir fari jafnframt fram í Gamla bíói og nýrri farþegamiðstöð Faxaflóhafna við Viðeyjarsund.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vefsíðu Cruise Europe 2026 og færslu Faxaflóahafna.