Horfur eru á samdrætti í ferðaþjónustu þetta árið en hægum vexti á næsta og þarnæsta ári, samkvæmt nýrri spá Greiningar Íslandsbanka.
„Tölur um áætlaðan fjölda flugferða, bókunarstöðu hjá hótelum og öðrum þjónustuaðilum gefa til kynna að aftur verði nokkur fækkun ferðafólks milli ára fram undir vorið,“ segir í greiningunni.
Horfur fyrir háönnina eru þó sagðar skárri og gert ráð fyrir nánast óbreyttum ferðamannafjölda milli ára í júní-september.
„Fyrir árið í heild spáum við tæplega 4% fækkun ferðamanna frá síðasta ári. Í kjölfarið gerum við ráð fyrir hægum vexti ferðaþjónustunnar árin 2027-2028.“

Tekið er fram að fjöldamet frá 2018 verði ekki slegið á spátímanum, gangi spáin eftir.
Þá segir að forvitnilegt verði að fylgjast með ferðamannatölum allra næstu mánaða í ljósi janúartalna Ferðamálastofu, sem hafi verið hagfelldari en sérfræðingar Greiningar bankans hafi þorað að vona eftir krappan samdrátt á lokamánuðum síðasta árs og vísbendingar um rýra byrjun á þessu ári.
„Vonandi verður það einnig raunin á næstu mánuðum.“