Boðað hefur verið til landssamráðsfundar um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess á Hilton Reykjavík Nordica 4. mars næstkomandi. Í færslu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins kemur fram að fundurinn sé haldinn að undirlagi Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Embætti ríkislögreglustjóra sér um skipulagningu og framkvæmd fundarins og er undirbúningur þegar hafinn,“ segir þar.
Fram kemur að markmið fundarins sé að efla þverfaglegt samstarf og deila þekkingu um forvarnir og meðferð ofbeldismála.
„Sjónarhorn þolenda og leiðir til að fá gerendur til að breyta hegðun sinni til að draga úr ítrekuðum brotum verða í brennidepli.“

Haft er eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, að ofbeldi sé samfélagslegt mein sem krefjist öflugrar samvinnu allra þeirra sem að málaflokknum koma.
„Landssamráðsfundurinn er einmitt mikilvægur liður í því og gefur okkur tækifæri til þess að hittast, fræðast, deila reynslu og ræða hvernig við eflum samstarfið og hvað hægt er að gera betur í að vinna gegn ofbeldi í samfélaginu og afleiðingum þess,“ segir hann.
Fram kemur að fundurinn sé opinn öllum, en sérstaklega ætlaður fulltrúum ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka, rannsóknastofnana og öðrum sem láta sig þessi mál varða.
Frekari upplýsingar auk skráningarforms er að finna á vef Landssamráðsfundar gegn ofbeldi 2026 á Ísland.is.