Innviðaráðuneytið, undir forystu Eyjólfs Ármannssonar, skorar hæst af ráðuneytum stjórnarráðsins í könnuninni Stofnun ársins 2025. Það ráðuneyti sem skorar lægst er umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti Jóhanns Páls Jóhannssonar.
Nýjar niðurstöður könnunarinnar Stofnun ársins 2025 sýna hvernig starfsfólk ráðuneyta og annarra ríkisstofnana metur vinnustað sinn. Könnunin er framkvæmd árlega og byggir á svörum tæplega 18.000 starfsmanna hjá ríki, Reykjavíkurborg og sjálfseignarstofnunum. Í ár fór mælingin fram á tímabilinu október til desember 2025 og eru niðurstöðurnar byggðar á vegnu meðaltali níu þátta, þar á meðal stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, jafnrétti og ánægju og stolti.
Heildareinkunn hvers vinnustaðar er á kvarðanum 1 til 5 og ræður hún röðun stofnana á listanum. Niðurstöðurnar gefa vísbendingu um innra starfsumhverfi, traust til stjórnenda og líðan starfsfólks og eru jafnframt notaðar sem viðmið í umbótastarfi og mannauðsstjórnun innan opinbera geirans. Þar sem stjórnun vegur þyngst í heildarmatinu gefa einkunnirnar einnig sterka mynd af því hvernig starfsfólk metur stjórnun og skipulag innan stofnana.

Rétt á hæla innviðaráðuneytisins koma menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið, fjármálaráðuneytið og forsætisráðuneytið. Auk Eyjólfs mega því Logi Einarsson, Daði Már Kristófersson og Kristrún Frostadóttir vel við una með ánægju starfsfólks ráðuneytanna.

Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir. Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti. Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd 1) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni.
- Innviðaráðuneytið – 4,309
- Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið – 4,294
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið – 4,264
- Forsætisráðuneytið – 4,216
- Utanríkisráðuneytið – 4,080
- Atvinnuvegaráðuneytið – 3,972
- Dómsmálaráðuneytið – 3,920
- Heilbrigðisráðuneytið – 3,912
- Félags- og húsnæðismálaráðuneytið – 3,989
- Mennta- og barnamálaráðuneytið – 3,706
- Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið – 3,534