Skráð atvinnuleysi var 4,9 prósent í janúar og jókst um 0,5 prósent frá því í desembermánuði, samkvæmt nýjustu mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar.
Stofnunin spáir því að atvinnuleysi aukist í febrúar og verði um 5,0 til 5,1 prósent.
Í janúar 2025 var atvinnuleysið hins vegar 4,2 prósent og aukningin á milli ára 0,7 prósentustig.
„Að meðaltali voru 9.748 atvinnulausir í janúar, 5.852 karlar og 3.896 konur. Meðalfjöldi atvinnulausra fjölgaði um 705 manns milli mánaða.“
Fram kemur að í janúar hafi hafi atvinnuleysið verið mest á Suðurnesjum eða 8,9 prósent, líkt og í fyrri mánuði.
„Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra eða 1,9%.“
Alls hafi í mánuðinum komið inn 168 ný störf sem auglýst hafi verið í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar.
„Atvinnulausir voru 10.185 í lok janúar , 6.076 karlar og 4.109 konur.“
Þá kemur fram að í janúar hafi Vinnumálastofnun gefið út 302 atvinnuleyfi til erlendra ríkisborgara, þar af 256 á höfuðborgarsvæðinu.
Sömuleiðis að í mánuðinum hafi 198 manns verið á ráðningarstyrk innan fyrirtækja eða stofnana og þrír á svokölluðum nýsköpunarstyrk.
