Lausum störfum fækkaði á milli ársfjórðunga

Á lokafjórðungi síðasta árs voru 3.460 laus störf á íslenskum vinnumarkaði og tæplega 242 þúsund störf mönnuð samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands.

Hagstofa Íslands.
Hagstofa Íslands. Mynd/Google Earth

Lausum störfum fækkaði um 1.800 á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs nýliðins árs.

Fram kemur í nýbirtri starfaskráningu Hagstofu Íslands að hlutfall lausra starfa hafi lækkað um 0,7 prósentustig.

„Samanburður við fjórða ársfjórðung 2024 sýnir að lausum störfum fækkaði um 460 á milli ára og hlutfall lausra starfa dróst saman um 0,2 prósentustig.“

Fram kemur að alls hafi verið 3.460 störf laus á íslenskum vinnumarkaði á fjórða ársfjórðungi 2025.

„Á sama tíma voru um 241.802 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,4%.“