Fimm hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2026 sem veitt voru við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands í gær.
„Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök heiðursverðlaun en þetta er í sautjánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent,“ segir í tilkynningu.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2026 eru:
Í flokki yfirstjórnenda:
- Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips
Í flokki millistjórnenda:
- Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO
- Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka
Í flokki frumkvöðla:
- Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans.
„Auk þess hlaut Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar.“
Frem kemur að stjórnunarverðlaun Stjórnvísi séu árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þyki hafa skarað fram úr á sínu sviði.
„Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi.“
Einnig er þeim sagt ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla auk þess að örva umræðu um faglega stjórnun.
Í dómnefnd verðlaunanna voru:
Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, framkvæmdastjóri Ísorku og stjórnarformaður Kadeco; Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar; Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands; Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá; Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs; Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona; og Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Ritari dómnefndar er svo Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi.