Nýr „stafrænn ráðgjafi“ á vef ELKO er sagður byggja á umfangsmeiri tækni en þekkist í öðrum spjallmennum. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að hann byggi svör sín bæði á innri vöruupplýsingum og ytri gögnum.
Með því sé hægt að bregðast við flóknum fyrirspurnum og mæta ólíkum þörfum og aðstæðum hverju sinni.
Stafræni ráðgjafinn er sagður auðvelda viðskiptavinum að finna upplýsingar og lausnir. Hann hjálpi til við val á raftækjum og lausnum út frá þörfum viðskiptavina fyrirtækisins.

Haft er eftir Þórkeli Þórðarsyni, deildarstjóra stafrænnar þróunar hjá ELKO, að stafræni ráðgjafinn nýti vefinn á nýjan hátt og einfaldi viðskiptavinum hlutina.
„Hann veitir persónulega og skilvirka aðstoð, hvort sem fyrirspurnir varða heimilistæki, tölvubúnað eða snjalltæki og styður við þjónustu okkar í netviðskiptum, þannig að fólk fái alltaf áreiðanlega ráðgjöf þegar því hentar,“ segir Þórkell.
Ráðgjafinn svari í rauntíma og nýti gervigreind til að greina þarfir og kröfur viðskiptavina og komi með tillögur sem byggi á raunverulegum forsendum, til dæmis hvort ákveðin stærð sjónvarps henti rými og fjárhagsáætlun eða hvaða tölva sé best fyrir mismunandi notkun.
„Við viljum nýta tækni til að bæta þjónustu, ekki til að skipta núverandi þjónustu út. Stafræni ráðgjafinn vinnur þannig við hlið starfsfólks og auðveldar viðskiptavinum að taka upplýstar ákvarðanir, hvar og hvenær sem er.“

Þórkell segir stafræna ráðgjafann enn skilgreindan sem starfsmaður í þjálfun, eða í beta-prófunum, og því megi búast við feilsporum eins og gerist með gervigreind.
„Því óskum við eftir aðstoð viðskiptavina við að prófa lausnina, sem verður þróuð áfram í takt við notkun,“ bætir hann við.
Fram kemur að innskráðir notendur á vef ELKO geti nú þegar notað stafræna ráðgjafann, en ELKO segir hann verða þróaðan áfram með nýjum tólum og virkni sem bætist við eftir því sem tækninni vindur fram.