Stefnt er að því að koma á fót sendiráði Tyrklands á Íslandi síðar á þessu ári. Þetta er meðal þess sem fram kom á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands í gær.
Í umfjöllun utanríkisráðuneytisins kemur fram að ráðherrarnir hafi ræt sameiginleg hagsmunamál sem og vaxandi tvíhliða samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.
Haft er eftir Þorgerði Katrínu að hún hafi þakkað Fidan þann áhuga sem tyrknesk stjórnvöld hafi sýnt Íslandi og norðurslóðum að undanförnu.

„Þjóðir okkar eiga í góðum tvíhliða samskiptum og við erum auðvitað bandamenn til áratuga í Atlantshafsbandalaginu,“ segir hún.
Þá hafi utanríkisráðherrann greint henni frá áformum stjórnvalda í Tyrklandi um að koma á fót sendiráði á Íslandi síðar á þessu ári.
„Sem mér finnst auðvitað mikil gleðitíðindi.“
Þá segir ráðuneytið að á símafundi ráðherrana hafi líka verið rædd málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands.