Innlendum umsóknum um skráningu fjölgaði um 5%

Ekki hafa fleiri umsóknir borist um skráningu frá íslenskum aðilum síðan árið 2018.

Hugverkastofan
Mynd/Hugverkastofan

Hugverkastofunni bárust 809 umsóknir um skráningu á vörumerkjum frá íslenskum aðilum á nýliðnu ári. Fram kemur í tilkynningu að það sé fimm prósenta aukning frá árinu 2024.

„Ekki hafa fleiri umsóknir borist um skráningu frá íslenskum aðilum síðan árið 2018,“ segir þar.

Smávægileg fjölgun er einnig gögð hafa orðið á umsóknum erlendra aðila um skráningu vörumerkja hér á landi.

„552 slíkar umsóknir bárust á nýliðnu ári samanborið við 538 árið 2024.“

Á sama tíma hafi hins vegar fækkað úr 2.510 í 2.413 alþjóðlegum umsóknum í gegnum Alþjóðahugverkastofnunina (WIPO) um skráningu vörumerkja sem óskað hafi verið eftir að tækju gildi hér á landi.

Actavis, Ölgerðin og MS með flestu vörumerkin

Fram kemur að alls séu hér á landi skráð tæplega 66 þúsund vörumerki.

„Flest eru þau í eigu bandarískra aðila, eða tæplega 13.000 en næstflest í eigu íslenskra aðila, ríflega 7.000.“

Flest skráð íslensk vörumerki eigi Actavis Group PCT ehf., Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Mjólkursamsalan ehf. á meðan flest erlend merki séu í eigu Apple Inc., Pfizer Inc. og Monster Energy Company.

Hugverkastofnun eru sögð hafa borist átján andmæli gegn skráningu vörumerkja árið 2025, en úrskurðað hafi verið í nítján andmælamálum á árinu.

Fimmtán kröfur hafi borist um niðurfellingu vörumerkjaskráninga og ein ógildingarkrafa.

„Sex ákvarðanir voru birtar í niðurfellingarmálum og ein í ógildingarmáli.“

Einkaleyfisumsóknum fækkaði

Þá kemur fram að Hugverkastofunni hafi í fyrra borist alls 43 landsbundnar umsóknir um einkaleyfi, samanborið við 47 árið áður.

„Þar af voru 23 umsóknir frá íslenskum aðilum, 14 frá erlendum aðilum og sex umsóknir bárust í gegnum PCT kerfi Alþjóðahugverkastofnunarinnar.“

Um leið segir að þó svo einkaleyfisumsóknum hafi fækkað lítillega hafi veittum einkaleyfum fjölgað á árinu.

„Hugverkastofan veitti í fyrra fimm innlendum aðilum einkaleyfi hér á landi á grunni landsbundinna umsókna og átta erlendum.“

Flest einkaleyfi í gildi á Íslandi eru sögð svokölluð evrópsk einkaleyfi sem veitt eru af Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) og hægt að fá staðfest hér á landi.

„Nokkur fækkun varð á slíkum staðfestingum á síðasta ári þegar 927 evrópsk einkaleyfi voru staðfest hér á landi, samanborið við 1.073 árið áður.“

Um eitt prósent í eigu íslenskra aðila

„Alls eru rétt ríflega 9.000 einkaleyfi í gildi hér á landi. Langflest, eða tæplega 3.300 eru í eigu bandarískra aðila en aðeins rétt ríflega 100 einkaleyfi hér á landi eru í eigu íslenskra aðila, eða um 1% þeirra einkaleyfa sem eru í gildi.“

Fram kemur að þau íslensku fyrirtæki sem eigi flest íslensk einkaleyfi í gildi séu Hampiðjan, Össur og Marel.

„Stærsti erlendi eigandi einkaleyfa hér á landi er International Business Machines Corporation (IBM) en af þeim aðilum sem eiga flest einkaleyfi á Íslandi eru aðeins þrír sem ekki eru lyfja- eða líftæknifyrirtæki.“

Gildar hönnunarskráningar eru fimmtán hundruð

Þá segir að 204 umsóknir hafi borist Hugverkastofunni um skráningu hönnunar á árinu 2025. Þar af hafi mikill meirihluti, eða 163, verið alþjóðlegar umsóknir sem bárust í gegnum Alþjóðahugverkastofnunina.

„Íslenskir aðilar sendu inn 34 umsóknir sem er mesti fjöldi umsókna sem hefur borist undanfarin ár.“

Alls séu ríflega 1.500 hönnunarskráningar í gildi hér á landi, flestar í eigu svissneskra aðila, en 86 í eigu íslenskra.

Gröf og frekari tölfræði er að finna á vef Hugverkastofunnar.