„Það er ódýrt að skella skuldinni á aðra þegar ríkisvaldið keyrir sjálft upp kostnað neytenda með því að hækka neysluskatta með skömmum fyrirvara,“ skrifar Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, í aðsendri grein á visir.is. Hann segir að þróun eldsneytisverðs eftir áramótin, í kjölfar niðurfellingar olíugjalds ríkisstjórnarinnar, rími nákvæmlega við spá stjórnvalda.
Í áhrifamati sem fylgdi frumvarpi um kílómetragjald var gert ráð fyrir að nettóáhrif kílómetragjalds og niðurfellingar eldsneytisgjalda yrði á bilinu 0 til 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,05% hækkun. Því benda verðbólgutölur til þess að lækkun eldsneytisgjalda hafi skilað sér nákvæmlega eins og að var stefnt.
Björn Brynjúlfur segir að stjórnvöld virðast hafa misreiknað hrapalega áhrif hærri vörugjalda á ökutæki og skerta rafbílastyrkja.
Í minnisblaði frá fjármálaráðuneytinu kom fram að áætluð áhrif hærri vörugjalda yrðu um 0,10% til hækkunar á vísitölu. Raunin varð 0,56% hækkun. Sú hækkun er stærsti orsakaþáttur hærri verðbólgumælingar núna í janúar.
Með greininni er birt mynd sem sýnir hvernig einstaka liðir hafa haft áhrif á vísitölu neysluverðs.

Í stað þess að líta í eigin barm segir Björn Brynjúlfur að leiðtogar landsins hafi ákveðið að gera olíufélög og bílaumboð að sökudólgum. Það megi telja sérstakt í ljósi þess að hækkunina megi rekja til aðgerða ríkisstjórnarinnar sjálfrar: hækkunar vörugjalda á bifreiðar og lækkunar rafbílastyrks.
Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast að rót vandans á útgjaldahlið ríkissjóðs. Áður en stjórnvöld kenna öðrum um að kynda undir verðbólgubálið ættu þau að byrja á því að leggja frá sér bensínbrúsann.Valdhafar geta ekki verið hissa á því að varnaðarorð margra aðila hafi nú raungerst. Í viðbrögðum sínum væri nær að taka ábyrgð á erfiðri stöðu og ráðast að rót vandans á útgjaldahlið ríkissjóðs. Áður en stjórnvöld kenna öðrum um að kynda undir verðbólgubálið ættu þau að byrja á því að leggja frá sér bensínbrúsann.