Frá 2008 hefur orðið sautján prósent fækkun í landbúnaði

Þrátt fyrir almennt lítinn tekjuvöxt batnaði afkoma í landbúnaði lítillega á árinu 2024.

Kind, húsdýr.
Kind. Mynd/ÓKÁ

Búum í landbúnaði hélt áfram að fækka árið 2024 en þá voru voru 2.442 rekstraraðilar starfandi, samkvæmt nýrri birtingu Hagstofu Íslands á rekstrar- og efnahagsyfirliti landbúnaðarins 2024. Um var að ræða þriggja prósenta fækkun búa á milli ára, en árið 2023 voru 2.527 bú starfandi.

„Mest fækkaði sauðfjárbúum (-53) en almennt var fækkun í öllum greinum nema garðrækt og loðdýrarækt þar sem fjöldinn stóð í stað,“ segir í samantekt Hagstofunnar.

Fækkunin er sögð hafa verið tiltölulega jöfn hlutfallslega í flestum landshlutum og mest á Suðurlandi þar sem jafnan séu flest bú.

„Síðan 2008 hefur búum og rekstraraðilum í landbúnaði fækkað um 17% eða 507 á landinu öllu.“

Þá kemur fram að árið 2024 hafi almennt verið lítill tekjuvöxtur hjá rekstraraðilum í landbúnaði (án svína- og alifuglaræktar), en tekjur greinanna hafi aukist um tæplega fjögur prósent á árinu.

„Heildarafkoma batnaði þó lítillega sem einkum mátti rekja til lægri fjármagnskostnaðar.“

Tekjuaukning sem ekki hélt í við verðbólgu

Fram kemur að heildartekjur í landbúnaði hafi aukist um nær 2,4 milljarða króna árið 2024 og verið tæplega 65,9 milljarðar króna samanborið við 63,5 milljarða árið áður.

„Þetta var 3,7% hækkun frá fyrra ári og jafnframt nokkuð minni aukning en árið 2023 þegar tekjurnar jukust um rúmlega 9%.“

Þá hafi tekjuaukningin ekki haldið í við verðbólgu því vísitala neysluverðs hafi hækkað um 5,9 prósent á árinu 2024.

Afkoman batnaði líttillega á árinu

„Þrátt fyrir almennt lítinn tekjuvöxt batnaði afkoma greinanna lítillega á árinu 2024. Samtals var hagnaður þeirra tæplega 2,8 milljarðar króna sem var 172 milljóna króna aukning eða 6,6% vöxtur frá fyrra ári.“

Hagstofan segir að þótt afkoma hafi hlutfallslega batnað mest í garðrækt og plöntufjölgun, eða um 47 prósent, þá hafi 22 prósenta aukning í hagnaði kúabúa haft mest að segja í krónum talið.

Afkoma kúabúa er sögð hafa aukist um 289 milljónir króna á árinu 2024. Þar hafi 454 milljóna króna bætt afkoma vegna fjármagnsliða haft mikið að segja.

„Hjá sauðfjárbúum dróst hagnaður saman um 25% og reyndist 832 milljónir króna samanborið við 1,1 milljarð árið áður.“

Langsamlega stærsti hluti hagnaðar þessara fimm greina landbúnaðar er sagður hafa verið hjá kúabúum eða tæplega 1,6 milljarðar króna af 2,8 milljörðum samtals.

Alla samantekt Hagstofunnar má lesa á vef hennar.