Síminn fær þrefalt hærri styrk en Sýn

Hljóðnemi í hljóðveri. Talsetning, textun, þýðingar,
Mynd/Will Francis á Unsplash

Síminn og Sýn hljóta styrk úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna vegna verkefna ársins 2025, Síminn 20,8 milljónir króna og Sýn 6,6 milljónir. Umsókn Skjásýnar ehf. var hafnað.

Í tilkynningu Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið um úthlutunina kemur fram að talsetningar- og textunarsjóður fjölmiðlaveitna sé starfræktur tímabundið til þriggja ára. Úthlutað hafi verið í fyrsta skipti úr sjóðnum 2024. 

„Sjóðnum er ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlum og stuðla að vernd íslenskrar tungu.“

Fram kemur að styrkir sé veittir til talsetningar og/eða textunar barnaefnis á íslensku. 

„Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra úthlutar fé úr sjóðnum einu sinni á ári og getur styrkur til verkefnis aldrei numið hærri fjárhæð en 80% kostnaðaráætlunar.“ 

Þá er miðað við að efnið hafi verið frumsýnt á áskriftarfjölmiðli á síðastliðnum tólf mánuðum og að viðkomandi áskriftarfjölmiðill hafi fleiri en tvö þúsund áskrifendur.

Auglýst var eftir umsóknum 28. nóvember 2025 og frestur til skila á umsóknum til miðnættis 14. desember. 

„Við mat á umsóknum var litið til stöðu umsækjenda á grundvelli reglna nr. 1231/2025, um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna, og þeirra skilyrða sem þar eru sett.“

Þrjár umsóknir bárust, frá Sýn hf. vegna barnaefnis á Sýn+, frá Símanum hf. vegna barnaefnis á Sjónvarpi Símans Premium og frá Skjásýn ehf. vegna barnaefnis sem aðgengilegt er á Sýn+.

Fram kemur að aðeins umsóknir Símans og Sýnar hafi uppfyllt skilyrði úthlutunarreglnanna.