Veiðiheimild Íslands á bláuggatúnfiski hefur verið aukin um þrettán prósent, fer úr 224 tonnum í 254,13 tonn. Aukningin nemur rétt rúmum 30 tonnum.
Fram kemur í færslu atvinnuvegaráðuneytisins að úthlutunin hafi verið ákveðin á 29. ársfundi Atlantshafs túnfiskveiðiráðsins (ICCAT).
„Bláuggatúnfiskur er einn verðmætasti fiskur hafsins og geta talsverð því verðmæti verið fólgin í íslenskum veiðiheimildum,“ segir þar.
Fram kemur að um veiðar á bláuggatúnfiski gildi strangar reglur.
„Sem stendur er nauðsynlegt að vera með skip sem siglir undir íslenskum fána til að nýta veiðiheimildir Íslands.“
Þá segir að íslenskar útgerðir hafi ekki stundað beinar veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski síðan 2016, en bláuggatúnsfiskur sem veiðst hafi sem meðafli hafi verið skráður.
„Ef veiðiheimildir Íslands væru nýttar gæfist tækifæri á að sækja auknar veiðiheimildir innan ICCAT en sem stendur nemur aukningin tæplega 30 tonnum á ári.“
Ísland er sagt hafa bent á það innan ICCAT að nauðsynlegt sé að endurskoða reglur sem banni erlend leiguskip. Þær reglur gildi einungis um stofn bláuggatúnfisks.
„Sú umræða verður endurvakin og óskað eftir vísindalegum rökum fyrir banninu.“
Sömuleiðis segir að staða Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks sé talin sterk og að talið sé að stjórnun og verndun á þessum stofni sé eitt besta dæmið um endurheimt fiskistofns á síðustu áratugum.