Móðurfélag Isavia ohf. fjölgar um tvo í framkvæmdastjórn

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir að markmið breytingar á skipuriti félagsins sé að það endurspegli betur viðskiptalíkan félagsins fyrir Keflavíkurflugvöll ásamt því að gefa mannauði, fyrirtækjamenningu og viðskiptaþróun meira rými innan skipurits.

Keflavíkurflugvöllur, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, KEF-airport.
Á Keflavíkurflugvelli. Mynd/ÓKÁ

Nýtt skipurit fyrir Isavia ohf., sem á og rekur Keflavíkurflugvöll, hefur verið kynnt. Í nýju skipuriti fjölgar um tvo í framkvæmdastjórn félagsins.

Fram kemur í tilkynningu að skipuritið taki eingöngu til Isavia, en ekki dótturfélaga þess.

Haft er eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, að markmið breytinganna sé að skipulagið endurspegli betur viðskiptalíkan félagsins fyrir Keflavíkurflugvöll ásamt því að gefa mannauði, fyrirtækjamenningu og viðskiptaþróun meira rými innan skipurits.

Hann segir að með nýju skipuriti verði breytingar í framkvæmdastjórn móðurfélagsins.

„Guðmundur Daði Rúnarsson og Anna Björk Bjarnadóttir, sem áður stýrðu viðskipta- og þróunarsviði og þjónustu og rekstri, höfðu bæði tekið ákvörðun um að hverfa til annarra verkefna. Við þökkum þeim kærlega fyrir gott samstarf á síðustu árum,“ segir Sveinbjörn.

Í nýrri framkvæmdastjórn Isavia ohf. eru:

  • Sveinbjörn Indriðason, forstjóri 
  • Bjarni Örn Kærnested, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni 
  • Bjarni Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar 
  • Elísabet Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar 
  • Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnu og samskipta 
  • Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála 
  • Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri innviða og búnaðar 

Þá segir að ný í framkvæmdastjórn séu Bjarni Páll Tryggvason, Hrönn Ingólfsdóttir og Maren Lind Másdóttir sem öll hafi starfað hjá Isavia um langt skeið.

„Bjarni Páll nú síðast sem forstöðumaður flugvallarþjónustu, Hrönn sem forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni og Maren Lind sem forstöðumaður mannvirkja og innviða.“

Þá kemur fram að Elísabet Sverrisdóttir hafi áður verið aðstoðarmaður forstjóra í framkvæmdastjórn en taki nú við starfi framkvæmdastjóra mannauðs og menningar.

Þá verði staða framkvæmdastjóra viðskipta auglýst á næstu dögum.