Tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta og stjórnmála var til umræðu á fundum sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, átti í Washington fyrr í þessari viku.
Fram kemur í færslu utanríkisráðuneytisins að alþjóðamál hafi jafnframt komið til umfjöllunar, málefni Grænlands og samstarf Evrópuþjóða og Bandaríkjanna.
„Ráðuneytisstjóri fundaði m.a. með Matt Siordia, varaaðstoðarviðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, og Brendan Hanrahan, sem fer fyrir Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins bandaríska.“
Til umræðu hafi verið viðskiptasamband landanna, þar með talin tollamál og samstarf þjóðanna á sviði öryggismála og alþjóðamál. Meðal þeirra hafi verið málefni Grænlands.

Þá hafi Martin fundað með nokkrum þingmönnum úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings, meðal annars bæði Chellie Pingree, þingkonu Demókrataflokksins frá Maine, og Greg Murphy, þingmanni Repúblikanaflokksins frá Norður-Karólínu.
Þau er saman sögð fara fyrir Íslandsvinahópi í fulltrúadeild þingsins.
Einnig hafi hann fundað með Rick Larsen, demókrata frá Washington-ríki, og John Moolenaar, repúblikana frá Michigan.
„Auk þess var fundað með lykilstarfsmönnum formanns utanríkismálanefndar öldungadeildar þingsins.“
Þá er Martin einnig sagður hafa sótt fundi í Alþjóðabankanum og átt gagnleg samtöl við sérfræðinga hjá hugveitum í Washington.
Sömuleiðis hafi hann tekið hús á sendiherra Danmerkur í Bandaríkjunum og fulltrúa grænlensku heimastjórnarinnar, Jesper Møller Sørensen og Jakob Isbosethsen.