Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra ellefu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins (SI), Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka árið 2026 nemur 221 milljarði króna.

Um er að ræða 76 milljarða, eða 53 prósenta, aukningu frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2025 sem nam 145 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í greiningu sem kynnt var á þinginu sem fram fer í dag á Grand Hótel Reykjavík milli klukkan eitt og fjögur. Þar kynna fulltrúar opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu.
Aukningin er sögð skýrast nær alfarið af auknum fyrirhuguðum útboðum Landsvirkjunar, Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE) og Nýs Landspítala (NLSH).
Áætluð útboð þessa árs eru engu að síður 43 milljörðum minni en áætlun síðasta árs gerði ráð fyrir. Þá má lesa úr tölum SI að af áætluðum útboðum síðustu ára hafi bara um helmingur til tveggja þriðju hluta raungerst á ári hverju.
Verði sú þróun sambærileg í ár og tveir þriðju hlutar raungerist þá næmi sú upphæð um 146 milljörðum króna, einum milljarði yfir rauntölum síðasta árs.
Í greiningu SI segir að í ár séu umfangsmest fyrirhuguð útboð Landsvirkjunar, sem séu áætluð 70 milljarðar króna á árinu. Það nemi tæplega þriðjungi af öllum fyrirhuguðum útboðum þeirra sem taki þátt í Útboðsþingi SI í ár.
„Aðrir sem boða umfangsmikil útboð árinu eru NLSH með 41 milljarð króna og FSRE með 35,7 milljarða króna. Samanlagt eru þessir þrír opinberu aðilar með boðuð verkútboð fyrir 146,7 milljarða króna árið 2026 eða um 66% af fyrirhuguðum útboðum ársins,“ segir í þar.
SI fjallar í greiningu sinni um að útboð síðasta árs hafi verið um 119 milljörðum minni en boðað hafði verið.
„Mestur munur var á fyrirhuguðum útboðum og raunútboðum hjá Landsvirkjun eða 68 milljarðar króna. Sá munur skýrir um 57% af fjárhæð þeirra fyrirhuguðu útboða sem ekki raungerðust á árinu.“
Þá er áréttað að þær áætlanir um útboð sem kynntar séu á Útboðsþingi SI séu ekki fastar í hendi og beri því að taka þeim með fyrirvara.
„Þá er einnig rétt að taka fram að verkefni sem fara í útboð á árinu geta komið til framkvæmda á næstu árum.“

Í greiningu SI segir jafnframt að framundan sé stórt ár í opinberum innviðaframkvæmdum.
„Vegagerðin boðar umfangsmestu innviðaframkvæmdirnar á þessu ári. Áætlanir gera ráð fyrir framkvæmt verði fyrir 38,2 milljarða króna á árinu. Það er ríflega 12 milljörðum meira en áætlanir fyrir síðasta ár gerðu ráð fyrir en innviðaframkvæmdir þess árs námu í raun 32,2 milljörðum króna.“
Þá stefni FSRE á að framkvæma fyrir 33,5 milljarða króna á árinu sem sé talsverð aukning frá fyrra ári. Eins boði Landsvirkjun aukningu í framkvæmdum á milli ára og áætli að þær nemi 29 milljörðum króna á þessu ári.
„Til samanburðar námu áætlaðar innviðaframkvæmdir Landsvirkjunar 25 milljörðum króna í fyrra en aðeins 15 milljarðar af þeirri fjárhæð raungerðust.“
Greininguna má nálgast í heild á vef Samtaka iðnaðarins.