Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi vegna mítils

Matvælastofnun hvetur alla dýralækna til árvekni og beinir til þeirra að senda alla mítla sem finnist til greiningar á Keldum.

Eigandi leitar mítla á hundi sínum.
Eigandi leitar mítla á hundi sínum. Mynd/Ivan Radic á Flickr.com (https://flic.kr/p/2m4T9KX)

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu um að brúni hundamítillinn (Rhipicephalus sanguineus) hafi greinst á hundi sem var í skoðun á Dýraspítalanum í Víðidal vegna kláða og útbrota í andliti.

„Greining fór fram á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum,“ segir í færslu stofnunarinnar.

Fram kemur að brúni hundamítillinn hafi ekki oft greinst hér á landi og sé ekki landlægur hér á landi.

„Í hvert sinn hefur tekist að uppræta hann. Matvælastofnun vinnur markvisst að því að koma í veg fyrir að þessi sníkjudýrategund nái fótfestu hér á landi.“

Snemmgreining skiptir máli

Matvælastofnun hvetur alla hundaeigendur til að skoða húð og feld hunda sinna reglulega og vera vakandi fyrir kláða, roða eða sárum í húð. Vakni grunur um mítla eiga þeir tafarlaust að hafa samband við dýralækni

„Snemmgreining skiptir miklu máli til að koma í veg fyrir útbreiðslu.“

Hvernig kemst kvikindið hingað?

Brúni hundamítillinn er sagður geta borist hingað til lands með fólki og farangri frá löndum þar sem hann er algengur, sérstaklega ef fólk hefur verið í snertingu við dýr eða í dýraumhverfi.

Til að draga úr áhættu er sagt mikilvægt að þvo allan fatnað sem hafi verið í snertingu við dýr, hreinsa og þvo skófatnað og fjarlægja óhreinindi úr farangri. Og sótthreinsa heimilið eftir þörfum.

Um mítillinn

Mítillinn er sagður nærast á blóði hunda, en jafnframt geta lagst á önnur spendýr, þar á meðal fólk. Hann er jafnframt sagður eini mítillinn sem geti lifað allan lífsferilinn innanhúss og hafi því fundist allan ársins hring.

„Aðeins um 5% mítla eru á dýrinu sjálfu – allt að 95% geta verið í umhverfinu,“ segir á vef stofnunarinnar.

Þá eru mítlarnir sagðir geta lifað í upphituðu húsnæði í marga mánuði án fæðu.

Getur borið varasama sjúkdóma

„Erlendis þekkist að brúni hundamítillinn geti borið smitefni sem valda alvarlegum sjúkdómum í hundum, svo sem Ehrlichia canis og Babesia canis.“

Áréttað er að þessi smitefni hafi ekki greinst á Íslandi.

Einnig geti mítillinn borið bakteríuna Rickettsia conorii, sem valdi svokallaðri Miðjarðarhafssótt í fólki.

„Sá sjúkdómur hefur ekki greinst hér á landi.“

Ef mítill finnst

Ef brúni hundamítillinn greinist segir Matvælsastofnun að setja verði viðkomandi dýr í einangrun þar til lyfjameðferð er hafin og hún orðin virk.

Heimili þurfi svo að ryksuga daglega, sérstaklega sprungur, lista og þröskulda. Auk þess verði að þvo bæli, teppi og fatnað.

„Frysting eða gufuhreinsun getur komið til greina ef ekki er hægt að þvo.“

Við mikla útbreiðslu gæti þurft að leita til meindýraeyðis.

Í færslu Matvælastofnun eru allir dýralæknar hvattir til að vera sérstaklega á varðbergi og senda alla mítla sem finnist til greiningar á Keldum.

Greinargóðar upplýsingar um brúna hundamítilinn voru birtar á vef Keldna þegar einn slíkur fannst hér á landi í desember 2024.

Lífsferill mítilsins. Mynd/Keldur-Dantas-Torres & Otranto (2022)