Liechtenstein með nýjan fulltrúa í yfirstjórn ESA

Fjögurra ára skipunartími yfirstjórnar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hófst um áramótin.

Nuscha Wieczorek sver embættiseið sem nýr fulltrúi yfirstjórnar ESA við athöfn í EFTA-dómstólnum í Lúxemborg.
Nuscha Wieczorek sver embættiseið sem nýr fulltrúi yfirstjórnar ESA við athöfn í EFTA-dómstólnum í Lúxemborg. Mynd/ESA

Nuscha Wieczorek hefur svarið embættiseið sem nýr fulltrúi yfirstjórnar ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Nuscha er tilnefnd af Liechtenstein. Í tilkynningu stofnunarinnar kemur fram að eiðtakan hafi farið fram við athöfn í EFTA-dómstólnum í Lúxemborg í gær, 14. janúar.

„Forseti EFTA-dómstólsins, Páll Hreinsson, stýrði athöfninni. Með eiðtökunni hét Nuscha Wieczorek því að rækja störf sín sjálfstætt og af heilindum,“ segir þar.

Eftir Nuschu Wieczorek er haft að heiður sé að taka við embættinu og fá að leggja sitt af mörkum til að styðja við evrópskt samstarf og stuðla að skilvirkri framkvæmd EES-samningsins.

„Þar sem væntingar til innri markaðsins eru meiri en nokkru sinni fyrr eykst mikilvægi starfs ESA að sama skapi,“ sagði hún að athöfn lokinni.

Fram kemur að áður en Nuscha gekk til liðs við ESA hafi hún starfað sem varafastafulltrúi sendinefndar Liechtenstein gagnvart Evrópusambandinu.

„Hún hefur gegnt ýmsum störfum hjá utanríkisþjónustu landsins frá árinu 2017. Hún hefur þar að auki áður gegnt ýmsum rannsóknar- og kennslustörfum á sviði þjóðaréttar og stjórnskipunarréttar við svissneska háskóla.“

Þá segir að fjögurra ára skipunartími yfirstjórnarinnar hafi hafist 1. janúar 2026.

„Arne Røksund frá Noregi og Árni Páll Árnason frá Íslandi hafa verið endurskipaðir til annars kjörtímabils hjá yfirstjórn ESA. Arne Røksund sem forseti ESA næstu tvö ár og Árni Páll Árnason sem varaforseti.“