Þjónustufyrirtækið Dagar og líftæknifyrirtækið Disact hafa hafið samstarf um að efla þjónustu við íslensk fyrirtæki og stofnanir á sviði ræstingar, loftgæða og mygluvarna.
Í tilkynningu fyrirtækjanna segir að áhersla sé lögð á samhæfða nálgun þar sem greining, ferlar og viðbrögð styðji við heilnæmi rýma og skýrari ákvarðanatöku.
Með því að saman fari reynsla Daga og tækni Disact við mat á aðstæðum sé hægt að velja viðeigandi aðgerðir, draga úr óþarfa inngripum og lágmarka röskun á rekstri ef upp koma rakaskemmdir eða vísbendingar um myglu.
„Samstarf fyrirtækjanna fellur jafnframt að áherslum Daga um að skapa nærandi og heilnæmt umhverfi, þar sem lögð er áhersla á rétta greiningu og markviss viðbrögð sem stuðla að sjálfbærni, skynsamlegri nýtingu auðlinda og lausnum sem samræmast hugmyndum hringrásarhagkerfisins,“ segir í tilkynningunni.
Þá er haft eftir Brynhildi Guðmundsdóttur, forstjóra Daga, að nálgunin leiði af sér skilvirkari viðbrögð og hraðari lausnir sem bæti vinnuumhverfi og rekstraröryggi.
„Fyrir viðskiptavini okkar skiptir mestu að fá skýra mynd af stöðu mála þegar upp koma ábendingar eða einkenni. Með aðgangi að sérhæfðri greiningu er hægt að veita trausta ráðgjöf um næstu skref og stytta leiðina að viðeigandi lausn með sjálfbærni að leiðarljósi,“ segir hún.
Þá er haft eftir Söndru Sif Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Disact, að sameining greiningar og úrræða skipta sköpum í málum tengdum mygluvanda. Rannsóknir hér á landi sýni að raki og rakaskemmdir séu algengar í íslensku húsnæði.
„Hreinlæti, loftgæði, forvarnir og meðhöndlun myglu eru nátengd viðfangsefni og einkenni vegna óhreininda, raka eða myglu geta oft verið svipuð. Með markvissu mati á aðstæðum er hægt að velja viðeigandi aðgerðir og meðhöndla húsnæði í vanda” segir hún.
Samstarfið við Daga þýði að nýta megi sérþekkingu beggja fyrirtækja með það að markmiði að styðja við viðskiptavini á upplýstan hátt.