Ekki hafa ennþá komið upp fleiri mislingasmit

Samkvæmt nýjasta uppgjöri almennra barnabólusetninga gegn mislingum fyrir árið 2024 er staðan á Íslandi almennt góð hjá yngri börnum, en ekki eins góð hjá eldri börnum og unglingum.

Heilsuvera - mislingar
Upplýsingasíðu um mislinga er að finna á vef Heilsuveru. Mynd/samsett

Vöktun stendur enn yfir vegna mislinga sem greindust hjá barni á Íslandi í byrjun mánaðarins, en ný tilfelli hafa ekki greinst.

Í umfjöllun sóttvarnalæknis á vef landlæknis kemur fram að meðgöngutími mislinga sé alla jafna sjö til fjórtán dagar, en geti verið allt að tuttugu og einn dagur.

„Því stendur vöktun yfir þar til sá tími er liðinn,“ segir þar.

Fram kemur að allir sem taldir voru hafa verið útsettir fyrir smiti hér á landi, þar á meðal einstaklingar sem voru samtímis hinum veika á Landspítala og í flugi til landsins, hafi verið boðaðir í bólusetningu þann 8. janúar eða settir í viðeigandi eftirfylgd af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Að sögn sóttvarnalæknis hafi málið og fréttir af því þótt tilefni til að veita almenningi nánari upplýsingar um stöðuna, áhættu og bólusetningar.

Hvað eru mislingar?

Mislingar á Íslandi 1888−2015. Mynd/Sóttvarnalæknir

Mislingar eru bráðsmitandi og voru áður einn skæðasti smitsjúkdómur barna á Íslandi, að því er fram kemur í umfjöllun sóttvarnalæknis.

„Eftir að skipulagðar bólusetningar hófust árið 1976 og MMR-bóluefni (mislingar, hettusótt og rauðir hundar) var tekið upp árið 1989 fjaraði sjúkdómurinn út og hvarf hérlendis árið 1996.“

Frá þeim tíma hafi aðeins greinst stök tilfelli eða litlar hrinur, yfirleitt tengdar innflutningi smits frá útlöndum.

Stærsta atvikið síðustu ár hafi verið árið 2019 þegar níu greindust með mislinga, þar af sex í hópsýkingu sem rekja mátti til óbólusetts ferðalangs.

„Þá var gripið til umfangsmikilla aðgerða, þar á meðal bólusetningar á um 6.800 einstaklingum, og tókst að stöðva útbreiðslu.“

Fram kemur að tímum COVID-19 faraldursins 2020−2023 hafi ekki greinst mislingar hér á landi.

„Árið 2024 komu hins vegar upp tvö stök tilfelli, annars vegar í febrúar og hins vegar í apríl, bæði hjá fullorðnum einstaklingum sem smituðust erlendis. Í hvorugu tilvikinu varð vart við áframhaldandi smit.“

Um mikilvægi bólusetningar gegn mislingum

Þá segir að hérlend bólusetningaráætlun gegn mislingum byggi á tveimur skömmtum af MMR-bóluefni:

  • Fyrsti skammtur við 18 mánaða aldur
  • Seinni skammtur við 12 ára aldur

En til að viðhalda hjarðónæmi gegn mislingum þurfi þátttaka helst að vera yfir 95 prósentum í báðum skömmtum.

Samkvæmt nýjasta uppgjöri almennra barnabólusetninga fyrir árið 2024 er staðan á Íslandi almennt sögð góð hjá yngri börnum, en ekki eins góð hjá eldri börnum og unglingum.

Níutíu og fimm prósent 18 mánaða barna sem fædd voru á landsvísu 2022 séu bólusett en einungis 89 prósent í árgangi 12 ára barna sem fædd voru árið 2012.

Á höfuðborgarsvæðinu hafi skráð þátttaka hjá 18 mánaða börnum verið 94 prósent árið 2024, en 87 prósent hjá 12 ára börnum.

„Á sumum landsvæðum er þátttaka í seinni skammti undir 90%, sem er undir því marki sem þarf til að tryggja fullnægjandi vernd samfélagsins.“

Sóttvarnalæknir segir þátttöku undir 90 prósentum á landsvísu auka líkur á að mislingar geti náð fótfestu berist smit til landsins.

Fólk kanni stöðu sína

Sóttvarnalæknir hvetur alla sem eru fæddir á árunum 1975 til 1987, eða eru óvissir um hvort þeir hafi fengið tvo skammta af MMR-bóluefni (sem ætti á sjást inni á „Mínar síður“ á vefnum heilsuvera.is), til að kanna stöðu sína hjá heilsugæslunni og fá uppbótarbólusetningu sé hennar þörf vegna ferðalaga erlendis.

„Börn má bólusetja gegn mislingum frá 6 mánaða aldri ef sérstök hætta er á smiti, meðal annars vegna ferðalaga á svæði þar sem mislingar eru í dreifingu, þó að slíkur skammtur teljist viðbót og þurfi að fylgja eftir með hefðbundinni bólusetningaáætlun síðar.“

Innflutt smit geta ávallt borist til landsins

Sóttvarnalæknir segir að með almennt háu bólusetningarhlutfalli, skjótum viðbrögðum og áframhaldandi vöktun séu horfur á að umrætt tilfelli 8. janúar leiði ekki til frekari útbreiðslu.

„Reynslan sýnir þó að innflutt smit geta ávallt borist til landsins svo lengi sem mislingar ganga í heiminum. Bestu varnirnar gegn mislingum eru og verða full bólusetning.“

Nánari upplýsingar um mislinga má einnig finna á vef Heilsuveru.