Ný forysta hjá Landi og skógi

Í kjölfar fyrsta fundar nýs framkvæmdaráðs Lands og skógar þriðjudaginn 13. janúar verður boðað til starfsmannafundar og farið yfir þær breytingar sem orðið hafa með nýju skipuriti.

Ný forysta hjá Landi og skógi.
Bryndís Marteinsdóttir, Gunnlaugur Guðjónsson, Hreinn Óskarsson og Jónína Sigríður Þorláksdóttir. Mynd/samsett

Ráðið hefur verið í fjórar stöður sviðstjóra hjá Landi og skógi sem auglýstar voru lausar til umsóknar í desember. Um áramót gekk í gildi nýtt skipurit hjá stofnuninni.

Fram kemur á vef Lands og skógar að borist hafi 28 umsóknir um stöðurnar fjórar, en auglýst hafði verið eftir fólki til að stýra fjórum af þeim fimm sviðum stofnunarinnar, en Hanna Þóra Hauksdóttir hafði þegar verið skipuð í stöðu sviðstjóra mannauðs og og miðlunar.

Svið rannsókna, vöktunar og árangurs

Bryndís Marteinsdóttir var ráðin í starf sviðstjóra rannsókna, vöktunar og árangurs.

„Bryndís er með meistaragráðu og bakkalárgráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og doktorsgráðu í plöntuvistfræði frá Stokkhólmsháskóla. Hún hefur einnig lokið viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands,“ segir í umfjöllun stofnunarinnar.

Bryndís er sögð hafa umtalsverða reynslu af stjórnun og sjálfbærri landnýtingu. Hún hafi meðal annars starfað sem sérfræðingur, verkefnastjóri og sviðstjóri sviðs sjálfbærni og loftslags hjá Landgræðslunni og síðustu tvö ár sem sviðstjóri sviðs sjálfbærrar landnýtingar hjá Landi og skógi.

Svið reksturs, fjármála og stafrænnar þróunar

Nýr sviðsstjóri reksturs, fjármála og stafrænnar þróunar er svo Gunnlaugur Guðjónsson. 

Hann er sagður með meistaragráðu í International Forestry frá University of British Columbia og bakkalárgráðu í alþjóðamarkaðsfræðum frá Háskólanum í Reykjavík.

„Gunnlaugur er með umtalsverða reynslu af stjórnun, fjármálastjórnun, skógrækt og stafrænni þróun og starfaði um 23 ára skeið sem sviðstjóri rekstrarsviðs Skógræktar ríkisins og svo Skógræktarinnar.“

Fram kemur að frá sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar fyrir tveimur árum hafi Gunnlaugur starfað sem sviðstjóri gagna, miðlunar og nýsköpunar hjá Landi og skógi.

Svið þjóðskóga, landa og innviða

Hreinn Óskarsson hefur svo verið ráðinn sviðstjóri þjóðskóga, landa og innviða.

„Hann er með meistaragráðu í skógfræði frá landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn og doktorspróf í skógfræði frá Kaupmannahafnarháskóla. Hreinn hefur einnig lokið viðbótardiplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.“

Hreinn er sagður með umtalsverða starfsreynslu í stjórnun og skógrækt. Hann hafi meðal annars starfað sem skógræktarráðunautur, sérfræðingur hjá Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins og skógarvörður.

„Síðustu tíu ár hefur Hreinn starfað sem sviðstjóri, átta ár hjá Skógræktinni og síðustu tvö ár hjá Landi og skógi sem sviðstjóri þjóðskóga og landa.“

Svið þjónustu, ráðgjafar og umbreytinga

Þá hefur Jónína Sigríður Þorláksdóttir verið ráðin sviðstjóri þjónustu, ráðgjafar og umbreytinga.

Hún er sögð með BS-próf í líffræði og meistarapróf í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands og stunda doktorsnám í umhverfisfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands sem hún stefni að því að ljúka í vetur.

Fram kemur að Jónína Sigríður hafi verið í launuðu doktorsnámi við Landbúnaðarháskóla Íslands og þar áður meðal annars unnið hjá Rannsóknastöðinni Rifi á Raufarhöfn sem verkefnastjóri og forstöðumaður, hjá CAFF-skrifstofunni (Conservation of Arctic Flora and Fauna), hjá Háskóla Íslands og Norrænu ráðherranefndinni sem aðstoðarmaður við rannsóknir.

„Jónína Sigríður var á liðnu ári ráðin til Lands og skógar sem ráðgjafi í skógrækt og landgræðslu og hefur sinnt því starfi síðustu mánuði.“

Mynda saman framkvæmdaráð

Sviðstjórar Lands og skógar eru sagðir mynda framkvæmdaráð stofnunarinnar ásamt forstöðumanni. Fundi framkvæmdaráðs sitji svo jafnframt lögfræðingur stofnunarinnar og kynningarstjóri.

„Fyrsti fundur nýs framkvæmdaráðs verður á þriðjudaginn kemur, 13. janúar. Í kjölfar hans verður boðað til starfsmannafundar og farið yfir þær breytingar sem þegar hafa orðið með nýju skipuriti og fjallað um næstu skref.“