Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt Geðverndarfélagi Íslands átta milljóna króna styrk til að styðja við þýðingu og aðgengi að fræðslu- og námskeiðsefni úr hugmyndafræðinni Solihull – Togetherness.
Í færslu ráðuneytisins segir að hugmyndafræðin miði að því að efla geðheilbrigði, tengslamyndun og farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækum og forvarnamiðuðum aðgerðum.
„Togetherness (áður Solihull Approach) er alþjóðlega viðurkennd hugmyndafræði sem á rætur sínar að rekja til breska heilbrigðiskerfisins (NHS) í Birmingham,“ segir þar.
Nálgunin byggi á samþættingu þekkingar á heilastarfsemi, tengslamyndun, tilfinningalífi og áföllum og leggi áherslu á að styrkja samskipti, skilning og öryggi í uppeldi og þjónustu við börn og fjölskyldur.
Hugmyndafræðin er sögð nýtast í fjölbreyttum þjónustukerfum, þar á meðal í heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, skólum, snemmtækum stuðningi og foreldrafræðslu.
„Með henni er fagfólki og foreldrum veittur aukinn skilningur á hegðun barna, undirliggjandi þörfum og tilfinningum, sem stuðlar að minni vanlíðan og dregur úr þörf fyrir íþyngjandi inngripi síðar.“
Þá kemur fram að Geðverndarfélag Íslands hafi frá 2017 staðið fyrir fræðslu og þjálfun fagfólks í Solihull-hugmyndafræðinni.
Hingað til hafi nokkur hundruð einstaklingar úr ýmsum fagstéttum lokið grunnnámskeiði. Þar á meðal séu ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar og starfsfólk í skólum og félagsþjónustu.
„Á undanförnum árum hefur jafnframt verið unnið að því að gera netnáskeið Togetherness aðgengileg á íslensku í samstarfi við alþjóðlega samstarfsaðila.“
Þessi námskeið séu ætluð foreldrum, verðandi foreldrum, ungmennum og almenningi og fjalli meðal annars um meðgöngu, fæðingu, fyrstu ár barns, tilfinningalíf, hegðun og geðheilbrigði.
„Stefnt er að því að alls verði 17 netnámskeið aðgengileg á íslensku, auk þýðinga á lykilbókum sem styðja við fræðsluna.“
Fjárveiting heilbrigðisráðuneytisins er sögð koma til með að nýtast til áframhaldandi þýðinga á bókum og netnámskeiðum og tryggja þannig breiðara aðgengi að efninu hér á landi.
„Verkefnið styður beint við geðheilbrigðisáætlun stjórnvalda, áherslur um snemmtækan stuðning, geðrækt og forvarnir, sem og markmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt barna til heilsu og verndar.“
Meiri upplýsingar um Togetherness er að finna á heimasíðu Geðverndarfélagsins.