Níutíu prósent landsmanna telja að íslenskur iðnaður hafi jákvæð áhrif á samfélagið í heild. Aðeins þrjú prósent telja að hann hafi neikvæð áhrif. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði að beiðni Samtaka iðnaðarins (SI).

„Í sömu könnun Gallup kemur fram að 86% svarenda eru jákvæðir gagnvart iðnaði á Íslandi en aðeins 3% neikvæðir,“ segir í tilkynningu samtakanna.
Haft er eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI, að afgerandi mikil jákvæðni landsmanna í garð íslensks iðnaðar sé mikil viðurkenning fyrir þau fjölmörgu og öflugu iðnfyrirtæki sem starfi um land allt og þau 52 þúsund sem starfi í iðnaði á Íslandi.
„Það er einnig sérstaklega ánægjulegt að fá það staðfest að níu af hverjum tíu landsmanna telji að iðnaðurinn hafi jákvæð áhrif á samfélagið okkar en það er einmitt það sem þetta snýst um,“ segir hann.
Í öflugum iðnfyrirtækjum um land allt séu sköpuð verðmæti sem efli íslenskt samfélag á margvíslegan hátt.
„Hlutverk okkar í Samtökum iðnaðarins er að „efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar í þágu samfélagsins alls“ og vorum við því ánægð að fá þessar niðurstöður.“
Iðnaðurinn starfi í raun í þágu samfélagsins alla daga og á svo fjölbreyttum sviðum, hvort sem sé í mannvirkjagerð, framleiðsluiðnaði eða hugverkaiðnaði.
„Við höfum lagt okkur fram um að styðja okkar aðildarfyrirtæki til að sækja tækifærin og taka forystu á tímum breytinga og við hlökkum til að halda þeirri vinnu áfram enda eru tækifæri íslensks iðnaðar til vaxtar og aukins framlags til samfélagsins nánast óþrjótandi ef rétt er á málum haldið.“
Samtökin árétta í tilkynningu sinni að íslenskur iðnaður sé stærsta atvinnugreinin á Íslandi og ein af undirstöðum íslensks efnahagslífs.
„Greinin er fjölþætt og snertir nær alla þætti hagkerfisins.“
Innan iðnaðar starfi fjölbreytt flóra af fyrirtækjum sem séu samofin öllum sviðum efnahagslífsins með einum eða öðrum hætti.
Fyrirtækin séu bæði lítil og stór, í rótgrónum og nýjum iðngreinum með starfsemi um allt land.
„Greinin skapar ríflega fjórðung landsframleiðslu Íslands með beinum hætti og hefur hlutur iðnaðarins í verðmætasköpun hagkerfisins verið að aukast síðustu ár.“
Á íslenskum vinnumarkaði starfi einn af hverjum fjórum í iðnaði og hann skapi um 40 prósent útflutningstekna landsins.
Fram kemur að viðhorfskönnun Gallup hafi farið fram dagana 20. nóvember til 3. desember 2025. Fjöldi svarenda var 809 og í úrtakinu voru 18 ára og eldri af öllu landinu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
