Alls söfnuðust 2,8 milljónir króna við sölu á ilmkertinu Kjarri og hafa þær verið afhentar Vildarbörnum Icelandair.
„Icelandair, Epal og Fischersund tóku höndum saman í vetur og framleiddu og seldu ilmkertið Kjarr. Ilmkertið var framleitt í takmörkuðu magni og allur ágóði af seldum kertum rann til styrktar Vildarbörnum Icelandair,“ segir í tilkynningu.
Ilmurinn Kjarr er sagður nýr úr smiðju Fischersunds. Hann hafi verið sérstaklega framleiddur fyrir samstarfsverkefnið. Hvert kerti er sagt handgert á Íslandi úr hágæða ilmkjarnaolíum og endurunnu sojavaxi.
„Þetta er í annað sinn sem Icelandair og Epal taka höndum saman um að selja íslenska hönnunarvöru til styrktar Vildarbörnum en í fyrra var framleidd sérstök útgáfa af Vaðfugli Sigurjóns Pálssonar.“
Haft er eftir Dóru Elínu Atladóttur Johnsen, forstöðumanni Vildarbarna Icelandair, að þau séu afar þakklát fyrir samstarfið við Epal og Fischersund og frábært hafi verið að sjá hversu góðar móttökur verkefnið fékk.
„Sjóður Vildarbarna Icelandair er fjármagnaður að miklu leyti með framlögum frá farþegum og félögum í Saga Club og það er einstaklega ánægjulegt þegar fyrirtæki og einstaklingar leggja sitt af mörkum til þess að gefa langveikum börnum og þeim sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumaferðina,“ segir hún.