Jól og áramót geta verið áskorun fyrir gæludýr

Matvælastofnun bendir á að þó eigendur vilji dekra við gæludýr sín yfir hátíðarnar séu flest gæludýr og þá sér í lagi hundar, viðkvæm fyrir skyndilegum breytingum á fóðri.

Köttur í fangi eiganda síns um jól.
Köttur í fangi eiganda síns um jól. Mynd/Tatyana Ruvleva á Unsplash

Matvælastofnun minnir á að góð rútína, viðeigandi fæði og jafnvægi milli hreyfingar og hvíldar séu lykilatriði til að jólahátíðin verði gleðileg, bæði fyrir dýr og menn.

Í færslu á vef Mast er minnt á að á sama tíma og jólahátíðin sé tími gleði og samveru sé hún einnig tími breytinga frá daglegu lífi.

„Fyrir gæludýrin okkar geta þessar breytingar verið áskorun. Dagleg rútína raskast oft, heimsóknir eru fleiri en vanalega og aðgengi að óhefðbundnum mat og hlutum eykst,“ segir þar.

Sé ekki gætt að geti þetta aukið streitu og hættu á slysum eða veikindum hjá gæludýrunum.

Fyrirbyggjandi ráðstafanir

Vegna þessa sé gott að vera vel undirbúinn fyrir hátíðarnar. Stofnunin mælir með því vista símanúmer vakthafandi dýralæknis og kynna sér hvar næsta dýralæknisþjónusta sé aðgengileg yfir jólin.

Stofnunin mælir með eftirfarandi ráðstöfunum fyrir eigendur gældýra:

  • Vista símanúmer vakthafandi dýralæknis áður en hátíðarnar hefjast.
  • Hafa grunnupplýsingar um gæludýrið tiltækar.
  • Kynna sér neyðarviðbrögð við algengum slysum.
  • Tryggja að allir heimilismeðlimir viti hvaða reglur gilda um dýrið yfir jólin.

Gæludýr mörg sögð vanadýr

„Mörg gæludýr eru vanadýr og geta brugðist illa við skyndilegum breytingum á umhverfi og dagskipulagi. Aukið áreiti, gestakomur og óreglulegur svefntími geta valdið streitu.“

Í ljósi þessa er eigendum gæludýra ráðlagt að:

  • Halda fóðrunartímum, göngutúrum og hvíldartíma eins reglulegum og mögulegt er.
  • Tryggja að dýrið hafi aðgang að rólegu athvarfi þar sem það getur dregið sig í hlé.
  • Meta hvort betra sé að dýrið taki ekki þátt í öllum heimsóknum og samkomum.
  • Fylgjast með streitumerkjum, svo sem óróleika, breyttri hegðun eða lystarleysi.

Algengar hættur á heimilinu

Þá minnir Mast á að yfir hátíðarnar fjölgi hlutum á heimilum sem geti verið gæludýrum hættulegir. Þar á meðal séu:

  • jólaseríur og rafmagnssnúrur
  • skreytingar, gjafabönd og pakkningar
  • kerti og opinn eldur
  • jólablóm og jólatré
  • rafhlöður og seglar
  • jólamatur, sælgæti og önnur matvæli

Eigendum er því ráðlagt að:

  • Geyma skraut, pakka og gjafabönd þar sem dýrið nær ekki til
  • Festa jólatré tryggilega svo það velti ekki og forðast gler- og aðrar brothættar skreytingar neðst á trénu.
  • Festa rafmagnssnúrur og jólaseríur þannig að ekki sé hægt að naga þær.
  • Taka til reglulega og fjarlægja litla hluti sem gætu verið gleyptir, t.d. fallnar barrnálar.
  • Setja kerti aðeins þar sem dýrin komast ekki að þeim
  • Aldrei skilja logandi kerti eftir eftirlitslaus.
  • Velja rafmagnskerti þar sem það er mögulegt.
  • Geyma jólablóm utan seilingar eða velja plöntur sem ekki eru eitruðar.
  • Geyma nýjar og notaðar rafhlöður í lokuðum ílátum.
  • Skoða leikföng og skraut reglulega með tilliti til lausra rafhlaðna eða segla.
  • Leita tafarlaust til dýralæknis ef grunur vaknar um inntöku á seglum eða rafhlöðum.

Matarhættur til að varast

„Algengt er að eigendur vilji dekra við gæludýr sín yfir jólin. Flest gæludýr og þá sér í lagi hundar, eru viðkvæm fyrir skyndilegum breytingum á fóðri.“

Saltur, feitur eða kryddaður matur er sagður geta valdið meltingartruflunum á borð við niðurgang og uppköst í gæludýrum og í alvarlegum tilvikum leitt til dýralæknisheimsóknar yfir hátíðarnar. Á vef stofnunarinnar er að finna frekari upplýsingar um varasaman mat fyrir gæludýr.

Eigendum dýranna er ráðlagt að:

  • Halda sig við hefðbundið fóður dýrsins yfir hátíðarnar.
  • Upplýsa gesti, sérstaklega börn, um að ekki megi gefa dýrinu af borðinu.
  • Ef gefa á „jólabita“, velja viðeigandi gæludýrafóður og gefa í hófi.
  • Geyma afganga og matarleifar þar sem dýrið kemst ekki í þær.

Þá sé yfir hátíðarnar oft meira aðgengi að matvælum sem seú hættuleg gæludýrum. Í þeim hópi er meðal annars:

  • súkkulaði
  • laukur
  • vínber og rúsínur
  • avókadó (fuglar)

Minnt er á að bein geti einnig verið varasöm.

„Elduð bein og skörp bein, svo sem fuglabein, geta stungist í meltingarveginn og önnur bein valdið stíflu.“

Eigendum gæludýra er því ráðlagt að:

  • Geyma hættuleg matvæli í lokuðum skápum eða ílátum.
  • Forðast að skilja mat eftirlitslausan á borðum eða lágrekkum.
  • Kynna sér hvaða matvæli eru hættuleg viðkomandi gæludýri.
  • Hafa samband við dýralækni ef grunur vaknar um inntöku.

Mast segir að með einföldum ráðstöfunum, aukinni meðvitund og góðu skipulagi sé hægt að fyrirbyggja flest slys og veikindi gæludýra yfir jólahátíðina.

„Þannig geta jólin orðið öruggur, rólegur og gleðilegur tími fyrir alla heimilismeðlimi – líka gæludýrin.“