Tólf mánaða verðbólga mælist 4,5 prósent í desember samkvæmt nýbirtri mælingu Hagstofu Íslands. Aukning frá fyrra mánuði nemur 0,8 prósentustigum, en þá var tólf mánaða verðbólgan 3,7 prósent.
Á sama tíma mælist tólf mánaða hækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis um 3,8 prósent, sem er hækkun um 1,1 prósentustig, úr 2,7 prósentum í fyrri mánuði.
Skörp hækkun verðbólguvísitölunnar er rakin til þess að flestum tilboðsdögum í aðdraganda jóla sé lokið.
Vegna þessa hafi orðið hækkun í ýmsum flokkum sem áður höfðu lækkað í nóvember. Meðal annars hafi verð á fatnaði og skóm hækkað um 3,6 prósent.
Þá hafi kostnaður við hitaveitu aukist um 9,2 prósent og flugfargjöld til útlanda hækkað um 28,8 prósent.
„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2025, er 665,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 1,15% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 531,0 stig og hækkar um 1,45% frá nóvember 2025,“ segir í færslu Hagstofunnar.
